Fótbolti

Forráðamönnum Sampdora hótað í mafíósastíl

Smári Jökull Jónsson skrifar
Það hefur gengið illa hjá Sampdoria á tímabilinu og situr liðið í fallsæti Serie A.
Það hefur gengið illa hjá Sampdoria á tímabilinu og situr liðið í fallsæti Serie A. Vísir/Getty

Það hefur gengið illa hjá Sampdoria á tímabilinu og á dögunum fengu forráðamenn félagsins hótun þar sem svínshöfuð var skilið eftir við höfuðstöðvar félagsins.

Sampdora situr í næst neðsta sæti Serie A deildarinnar á Ítalíu og það er staða sem stuðningsmenn félagsins eru vitaskuld ekki sáttir með.

Í janúar fékk félagið nafnlausa hótun í formi bréfs en einnig hafði byssukúla verið skilin eftir í umslaginu.

„Í þetta skiptið er kúlan laus. Næst verður hún í alvöru,“ stóð í bréfinu en það var stílað á fyrrverandi forseta félagsins Massimo Ferrero og núverandi varaforsetann Antonio Romei.

Nú hefur félagið fengið nýja hótun en á dögunum var skilinn eftir kassi við höfuðstöðvar félagsins en hann var merktur þeim Ferrero og Romei, Í kassanum var svínshöfuð en að nota dýrahöfuð til hótana er þekkt aðferð og muna margir eftir því úr kvikmyndinni Guðfaðirinn þegar karakterinn Jack Woltz vaknaði með hrosshaus í rúminu sem hótun frá sjálfum guðföðurnum Don Corleone.

Í bréfi sem fylgdi með stóð „Næsta höfuð er ykkar“ og í yfirlýsingu Sampdoria segir að að félagið líti alvarlegum augum á atvikið.

 „UC Sampdoria vill undirstrika að hvers kyns hótun gagnvart stjórnarmeðlimi er árás á alla stjórnarmenn og þeirra vinnu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×