Menning

Anna Maggý og Ashley Tisdale á listamessunni LA Art Show

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Anna Maggý er með bás á alþjóðlegu listamessunni LA Art Show.
Anna Maggý er með bás á alþjóðlegu listamessunni LA Art Show. Aðsend

Ljósmyndarinn, leikstjórinn og listakonan Anna Maggý er stödd í Kaliforníu um þessar mundir en hún er með bás á alþjóðlegu listamessunni LA Art Show. Með henni í för er Ásdís Þula, eigandi Gallerí Þulu, en blaðamaður tók aðeins púlsinn á þeim.

„Listamessan er haldin í miðborg Los Angeles og er elsta messa borgarinnar. Þar koma saman gallerí alls staðar að úr heiminum til þess að kynna listamenn sína í 16.700 fermetra rými þar sem ægir saman hinum ýmsu miðlum listarinnar,“ segir Ásdís Þula.

Anna Maggý og Hunter Simms.

Mörk raunveruleika og drauma

Gallerí Þula tók þátt þetta árið í samvinnu við Önnu Maggý.

„Verk hennar hverfast um efnisleika ljósmyndunar, mörk raunveruleika og drauma og hvernig við sjáum hluti í nýju ljósi. 

Með því að þróa sífellt myndmál sitt kannar Anna Maggý óhefðbundna tækni og eftirvinnslu. Í stað þess að nota hugbúnað til að afbaka og breyta myndunum sínum prentar hún myndirnar og notar síðan gler, vatn, frost, málningu og önnur áþreifanleg efni til að vinna þær áfram og myndar myndirnar aftur og aftur í gegnum þetta ferli,“ segir Ásdís Þula.

Blái tónninn er ríkjandi í öllum verkum Önnu Maggýjar á sýningunni.Aðsend

Allt önnur stemning

Anna Maggý segir þessa reynslu skemmtilega en hún hefur sinnt ýmsum erlendum verkefnum í gegnum tíðina og hafa myndir hennar birst í ýmsum tímaritum.

„Það er ótrúlega gaman að sýna hér í LA. Hér er allt önnur stemning, skemmtilega öðruvísi platform og annar mannskapur. Ég er hér með bæði gömul og ný verk í bland þar sem bjögun á einn eða annan hátt er þráðurinn í gegn. Blár tónn er svo ríkjandi í öllum verkunum.“

High School Musical stjarna á svæðinu

Haldið var sérstakt opnunarkvöld þann 15. febrúar síðastliðinn þar sem leik- og söngkonan Ashley Tisdale var kynnir kvöldsins. Margir þekkja Tisdale úr High School Musical.

Hér má sjá auglýsingu fyrir opnunarhátíðina.Aðsend

„Fjöldi fólks stoppaði við hjá íslenska básnum og þar á meðal nokkur kunnugleg andlit, enda margir íslenskir listamenn sem starfa í Los Angeles þessa dagana,“ segir Ásdís Þula að lokum.

Hér má sjá nokkrar velvaldar myndir til viðbótar frá opnuninni: 

Opnunin var vel sótt. Til vinstri má sjá Önnu Maggý spjalla við gesti og í hægra horni má sjá Ásdísi Þulu og Lilju Birgisdóttur. Einnig glittir í Jónsa úr Sigur Rós fyrir aftan þær. Aðsend

Dröfn Ösp Snorradóttir-Roza virðir verkin fyrir sér ásamt Ásdísi Þulu.Aðsend
Þórður Ingi Jónsson, jafnan þekktur sem Lord Pusswhip, var meðal gesta. Í bakgrunni má sjá verk Önnu Maggýjar.Aðsend

Verk Önnu Maggýjar hverfast meðal annars um mörk raunveruleika og drauma.Aðsend

Tengdar fréttir

Smíðuðu plexi kassa sem flaug óvart á vörubíl

Ljósmyndarinn, leikstjórinn og listakonan Anna Maggý hefur leikstýrt ýmsum myndböndum í gegnum tíðina og má þar nefna tónlistarmyndband fyrir tónlistarkonuna Eydísi Evensen við lagið Brotin. Anna Maggý er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst en þar deildi hún meðal annars vægast sagt eftirminnilegri reynslusögu.

„Eina sem maður kemst ekki hjá er að fæðast og deyja“

„Móðir mín fór til spákonu og spákonan sagði að dóttir hennar yrði listakona. Þannig að mamma sendi mig strax í myndlist, sem er dálítið fyndið,“ segir listakonan, ljósmyndarinn og leikstjórinn Anna Maggý en hún er viðmælandi í þessum nýjasta þætti af Kúnst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×