Allt í skrúfunni hjá Liverpool sem beið afhroð gegn Úlfunum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ruben Neves fagnar marki sínu gegn Liverpool í dag.
Ruben Neves fagnar marki sínu gegn Liverpool í dag. Vísir/Getty

Wolves valtaði yfir Liverpool á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leikmenn Liverpool virtust heillum horfnir á löngum stundum og sigur Wolves afar sannfærandi.

Wolves byrjaði af miklum krafti og komust í 1-0 strax á 5.mínútu eftir sjálfsmark Joel Matip. Varnarleikur Liverpool var mjög ósannfærandi og markið klaufalegt. Á 12.mínútu var staðan síðan orðin 2-0 en þá skoraði Craig Dawson með þrumuskoti úr teignum eftir vandræðagang í vörn gestanna.

Staðan í hálfleik 2-0 en Liverpool mætti öflugra út í síðari hálfleikinn og sótti meira. Það nýttu Úlfarnir sér því Ruben Neves skoraði þriðja mark liðsins á 71.mínútu eftir vel útfærða skyndisókn.

Þarna voru úrslitin ráðin og stuðingsmenn Wolves byrjaðir að fagna áður en flautan gall, fögnuðu hverri sendingu sinna manna og niðurlægingin algjör fyrir Liverpool.

Lokatölur 3-0 Wolves í vil en fyrir leikinn í dag hafði liðið aðeins skorað tólf mörk í tuttugu deildarleikjum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira