Fatalínan innblásin af verðbréfamörkuðum og vaxtabreytingum Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 20. desember 2022 10:31 Eygló Margrét Lárusdóttir í afmæli KIOSK á síðasta ári. Aðsent Eygló Margrét Lárusdóttir fatahönnuður hefur sent frá sér nýja línu sem innblásin er af verðbréfamörkuðum og almennum skrifstofustörfum. „
Nasdaq skyrta við FTSE buxur er til dæmis mjög hátíðlegt dress fyrir jólin. Í munstrinu eru reyndar bara grænar tölur hjá mér enda er ég mjög bjartsýn að eðlisfari. Er með þessari línu að vonast til að fá fleiri viðskiptavini til mín sem starfa í Borgartúni sem við þekkjum sem Wall Street Íslands.“ Hún lýsir línunni sem skrifstofuglam. „Vísitölur, verðbréf og vesen. Market is going up! Grænar tölur og blússandi bjartsýni. Kannski ekki alveg staðan í dag en eigum við ekki bara að segja að ég sé skyggn? Vissuð þið að það er til vísitala fyrir pilssídd?“ Saga Sig myndaði línuna fyrir EYGLÓ. Fyrirsætan er Salka Vals, Ísak Freyr sá um förðun og Erna Hreins um stíliseringu.Saga Sig Eygló segir að það hafi líklega verið áhugi hennar á peningum sem kveikti á þessu. „Skrifstofufagurfræði. Það er af nógu að taka þarna. En svona grínlaust þá held ég bara að ég hafi verið að horfa of mikið á fréttir um verðbólgu og hækkandi vexti.“ Saga Sig myndaði línuna fyrir EYGLÓ. Fyrirsætan er Salka Vals, Ísak Freyr sá um förðun og Erna Hreins um stíliseringu.Saga Sig Í dag er hún einn af eigendum verslunarinnar KIOSK úti á granda og selur þar hönnun sína en hún á þó bakgrunn í skrifstofustörfum. „Ég vann einu sinni á ónefndri skrifstofu í Borgartúninu. Var þá sérstaklega upprifin af stóru ljósritunarvélinni sem var líka faxtæki. Þið fyllið í eyðurnar.“ Saga Sig myndaði línuna fyrir EYGLÓ. Fyrirsætan er Salka Vals, Ísak Freyr sá um förðun og Erna Hreins um stíliseringu.Saga Sig Hönnuðurinn eyðir aðventunni að mestu leyti í versluninni sinni en langar samt að skapa nýjar jólahefðir í bland við að njóta þeirra gömlu. „Aðventan er aðallega viðvera í Kiosk með mínum dásamlegu kollegum sem hleypa mér samt alltaf útí skötu á réttum tíma á Þorlák. Þegar ég er búin að ná skötulyktinni almennilega af mér þá þykir mér voða gott að fara í messu klukkan sex áður en ég fer uppá Álftanes til mömmu og pabba. Þá fæ ég jólaandann beint í æð eftir allan hasarinn á aðventunni. Mig langar hinsvegar að læra að gera laufabrauð; ef að það er pláss í einhverjum laufabrauðsklúbbi á næstu aðventu þá má endilega hringja í mig.“ Saga Sig myndaði línuna fyrir EYGLÓ. Fyrirsætan er Salka Vals, Ísak Freyr sá um förðun og Erna Hreins um stíliseringu.Saga Sig Saga Sig myndaði línuna fyrir EYGLÓ. Fyrirsætan er Salka Vals, Ísak Freyr sá um förðun og Erna Hreins um stíliseringu.Saga Sig
Tíska og hönnun Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira