Menning

Glænýr bóksölulisti Fibut: Ólafur Jóhann og Stefán Máni á mikilli siglingu

Jakob Bjarnar skrifar
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur verið á góðu flugi allan nóvember með bók sína, Játningu og situr í þriðja sæti skáldverkalistans þar sem hann skákar glæpasagnadrottningunni Yrsu Sigurðardóttur aðra vikuna í röð.
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur verið á góðu flugi allan nóvember með bók sína, Játningu og situr í þriðja sæti skáldverkalistans þar sem hann skákar glæpasagnadrottningunni Yrsu Sigurðardóttur aðra vikuna í röð. Vísir/Vilhelm

Eins og svo oft áður er helsta spurningin þessa jólabókaflóðs: Tekst einhverjum að velgja konungi bóksölunnar, Arnaldi Indriðasyni, undir uggum?

Vísir birtir nú annan bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda (Fibut) og greina má ýmsar hrókeringar, þó kóngurinn sé fastur fyrir. Ólafur Jóhann Ólafsson hefur verið á góðu flugi allan nóvember með bók sína, Játningu og situr í þriðja sæti skáldverkalistans þar sem hann skákar glæpasagnadrottningunni Yrsu Sigurðardóttur aðra vikuna í röð. 

Í raun er Ólafur Jóhann sá eini sem eitthvað truflar glæpasagnahöfundana sem leggja undir sig efstu sæti bóksölulistans. Og vandséð er að sjá hvort og þá hvernig áhrif kynning á tilnefningum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans í síðustu viku hafi áhrif á bóksöluna, eins og þeim þó er ætlað. Bók Yrsu, Gættu þinna handa situr í fjórða sæti skáldverkalistans en að henni sækir Hungur Stefáns Mána sem hefur verið í stórsókn að undanförnu, að sögn Bryndísar Loftsdóttur hjá Fíbút, sérfræðingi Vísis í bóksölunni.

„Fyrir utan Ólaf Jóhann, þá held ég að við eigum enn eftir að sjá nokkrar breytingar á skáldverkalistanum, salan er enn að taka á sig mynd. Þetta er óhemju sterkt skáldverkaár, kanónur og vonarstjörnur í bland. Af þeim síðast töldu virðist Haukur Már Helgason líklegastur í augnablikinu til þess að bregða sér í líki svarta folans með bók sína, Tugthúsið,“ segir Bryndís. 

Aðrir minna þekktir höfundar sem hugsanlega gætu blandað sér í þann slag eru Skúli Sigurðsson með glæpasöguna Stóri bróðir sem tilnefnd var til Blóðdropans í síðustu viku. Einnig Pedro Gunnlaugur Garcia með bók sína, Lungu, sem hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á dögunum.

„Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir verða aðra vikuna í röð að sætta sig við annað sæti listans með Reykjavík glæpasaga. Þau skortir enn nokkuð á sölu til þess að fanga toppsætið en eru þó nær því en í síðustu viku.“

Að sögn Bryndísar er hart sótt að Arnaldi Indriðasyni þetta árið. 

„líkt og undanfarna ríflega tvo áratugi lætur hann öðrum eftir að fylla fjölmiðla og gerir nákvæmlega ekkert til að hvetja lesendur til að kaupa bækur sínar nema þetta, sem öllu máli skiptir, að senda árlega frá sér skáldverk í hæsta gæðaflokki. Titill nýjustu bókar hans, Kyrrþey, hlýtur að hafa staðið honum nærri hjarta,“ segir Bryndís.


Mest seldu bækurnar 28. nóv. - 4. des. 2022



Skáldverk

1. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason

2. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir

3. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson

4. Gættu þinna handa - Yrsa Sigurðardóttir

5. Hungur - Stefán Máni

6. Eden - Auður Ava Ólafsdóttir

Hamingja þessa heims – Riddarasaga - Sigríður Hagalín Björnsdóttir

8. Saknaðarilmur - Elísabet Jökulsdóttir

9. Guli kafbáturinn - Jón Kalman Stefánsson

10. Strákar sem meiða - Eva Björg Ægisdóttir

11. Tugthúsið - Haukur Már Helgason

12. Útsýni - Guðrún Eva Mínervudóttir

13. Veðurteppt um jólin - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir

14. Fjällbacka-serían : Gauksunginn - Camilla Läckberg, þýð. Sigríður Eyþórsdóttir og Sigurður Þór Salvarsson

15. Opið haf - Einar Kárason

16. Tól - Kristín Eiríksdóttir

17. Drepsvart hraun - Lilja Sigurðardóttir

18. Jól í Litlu bókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir

19. Stóri bróðir - Skúli Sigurðsson

20. Stundum verða stökur til - Hjálmar Jónsson


Ævisögur, fræði- og handbækur

1. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson

2. Guðni – Flói bernsku minnar - Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson

3. Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson

4. Bréfin hennar mömmu - Ólafur Ragnar Grímsson

5. Glaðasti hundur í heimi - Biblía hundaeigandans - Heiðrún Villa

6. Tarot-bókin - Handbók og falleg tarot-spil - Claire Goodchild, þýð. Hafsteinn Thorarensen

7. Spítalastelpan - Hversdagshetjan Vinsý - Sigmundur Ernir Rúnarsson

8. Prjónað á börnin af enn meiri ást - Lene Holme Samsøe, myndh. Katrine Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir

9. Hetjurnar á HM - Illugi Jökulsson

10. Bakað meira með Elenoru Rós - Elenora Rós Georgesdóttir

11. Fimmaurabrandarar 4 - Endursögn: Fimmaurabrandara- fjelagið

12. Strand í gini gígsins - Surtseyjargosið og mannlífið í Eyjum - Ásmundur Friðriksson

13. Húðbókin - Lára G. Sigurðardóttir og Sólveig Eiríksdóttir, myndh. Hildur Ársælsdóttir

14. Tíminn minn 2023 - Björg Þórhallsdóttir

15. Sjöl og teppi, eins báðum megin - Auður Björt Skúladóttir, myndh. Auður Björt Skúladóttir og Christine Einarsson

16. Hjarta Íslands – Frá Hrísey til Fagradalsfjalls - Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stefánsson

17. Heimabarinn - Sérútgáfa - Andri Davíð Pétursson og Ivan Svanur Corvasce

18. Stiklur um undur Íslands - Ómar Ragnarsson, myndh. Friðþjófur Helgason

19. Ameríska goðsögnin - Saga Harley-Davidson mótorhjóla á Íslandi - Njáll Gunnlaugsson

20. Allt í blóma - Pottablómarækt við íslenskar aðstæður - Hafsteinn Hafliðason


Barna- og unglingabækur

1. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian

2. Hrekkjavaka með Láru - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

3. Alexander Daníel Hermann Dawidsson - Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring

4. Orri óstöðvandi- Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson

5. Lára fer í útilegu - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

6. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

7. Jólaföndur - rauð - Höfundar og þýðanda ekki getið

8. Lára fer á skíði - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

9. Laddi - Snjókorn falla, skemmtilegustu jólalögin - Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason

10. Salka - Tímaflakkið - Bjarni Fritzson

11. Leikum með sveinka - Höfundar og þýðanda ekki getið

12. Drengurinn með ljáinn - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Sigurjón Líndal Benediktsson

13. Skólaslit - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates

14. Fagurt galaði fuglinn sá - Helgi Jónsson og Anna M. Marinósdóttir, myndh. Jón B. Hlíðberg

15. Dagbók Kidda klaufa 16 - Meistarinn - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson

16. Gurra Grís - Gurra góða nótt - Mark Baker, þýð. Klara Helgadóttir

17. Litlu börnin læra orðin - Rhea Gaughan, þýð. Andri Karel Ásgeirsson

18. Jólasyrpa 2022 - Walt Disney

19. Risaeðlugengið - Fjársjóðsleitin - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer, þýð. Æsa Guðrún Bjarnadóttir og Sverrir Jakobsson

20. Bóbó bangsi og jólin - Jólasaga með flipa til að opna! - Hartmut Bieber, þýð. Kolbeinn Þorsteinsson


Mest seldu bækurnar í öllum flokkum 28. nóv – 4. des 2022

1. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason

2. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir

3. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson

4. Gættu þinnahanda - Yrsa Sigurðardóttir

5. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson

6. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian

7. Hrekkjavaka með Láru - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

8. Alexander Daníel Hermann Dawidsson - Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring

9. Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson

10. Lára fer í útilegu - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

11. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

12. Hungur - Stefán Máni

13. Jólaföndur - Höfundar og þýðanda ekki getið

14. Eden - Auður Ava Ólafsdóttir

15. Guðni – Flói bernsku minnar - Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson

16. Lára fer á skíði - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

17. Hamingja þessa heims - Riddarasaga - Sigríður Hagalín Björnsdóttir

18. Laddi - Snjókorn falla, skemmtilegustu jólalögin - Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason

19. Salka - Tímaflakkið - Bjarni Fritzson

20. Leikum með sveinka - Höfundar og þýðanda ekki getið


Mest seldu bækur ársins, frá 1. janúar til 4. desember

1. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason

2. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir

3. Hrekkjavaka með Láru - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

4. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson

5. Gættu þinna handa - Yrsa Sigurðardóttir

6. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian

7. Hanni granni dansari - Gunnar Helgason

8. Orri óstöðvandi - Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson

9. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson

10. Natríumklóríð - Jussi Adler-Olsen, þýð. Jón St. Kristjánsson

11. Lára fer í útilegu - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

12. Skólaslit - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates

13. Leyndarmálið - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal

14. Alexander Daníel Hermann Dawidsson - Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring

15. Hva - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

16. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

17. Dagbók Kidda klaufa 16 - Meistarinn - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson

18. Liðin tíð - Lee Child, þýð. Bjarni Gunnarsson

19. Fagurt galaði fuglinn sá - Helgi Jónsson og Anna M. Marinósdóttir, myndh. Jón B. Hlíðberg

20. Jólaföndur - Höfundar og þýðanda ekki getið


Tengdar fréttir

Katrín til­nefnd til bók­mennta­verð­launa

Einskonar samruni Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 varð þegar tilnefningar voru kynntar nú rétt í þessu á Kjarvalsstöðum. Athygli vekur að meðal hinna tilnefndu er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrir frumraun sína sviði glæpasagnagerðar.

Forsætisráðherra sækir að Arnaldi

Fyrsti bóksölulistinn fyrir árið 2022 lítur nú dagsins ljós. Nöfnin á toppi lista eru kunnugleg nema einn nýliði blandar sér í hópinn: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra velgir Arnaldi undir uggum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×