Menning

Hundrað listamenn saman á sýningu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Frá vinstri: Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf eigendur Listval ásamt Daríu Sól Andrews, Silviu Sól Ólafsdóttur og Aðalheiði Alfreðsdóttur sem allar starfa hjá Listval.
Frá vinstri: Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf eigendur Listval ásamt Daríu Sól Andrews, Silviu Sól Ólafsdóttur og Aðalheiði Alfreðsdóttur sem allar starfa hjá Listval. Anna Kristín

Næstkomandi laugardag opnar jólasýning Listvals í Hörpu. Á sýningunni má finna yfir 300 verk eftir um 100 listamenn sem njóta vinsælda hérlendis. Þær Helga Björg Kjerúlf og Elísabet Alma Svendsen eru stofnendur og eigendur Listvals og hafa saman staðið að fjöldanum öllum af sýningum með ólíku listafólki.

Þá fagnar Listval einnig eins árs veru í Hörpu en þær segja markmið Listvals frá upphafi hafa verið að auðvelda fólki að fjárfesta í myndlist og gera hana aðgengilegri. 

Jólasýning Listvals í Hörpu býður upp á mikla fjölbreytni ólíkra listaverka.Anna Kristín

Frá opnun Listvals í Hörpu hefur Listval sýnt og selt samtímamyndlist eftir tugi listamanna. „Við finnum fyrir mikilli ánægju meðal almennings á starfseminni og aðsóknin endurspeglar það,“ segir Elísabet Alma Svendsen.

Fyrir utan rýmið í Hörpunni sjá þær líka um sýningar í Norr11 á Hverfisgötunni þar sem Kristín Morthens sýnir nú málverk en einnig halda þær úti sýningarrými á Granda þar sem Áslaug Íris Friðjónsdóttir er nýbúin að opna. Þá bjóða þær einnig upp á myndlistarráðgjöf fyrir heimili og fyrirtæki.

„Við komum inn á heimili fólks og aðstoðum einstaklinga við að finna réttu verkin,“ 

segir Helga Björg. 

„Já og mjög oft erum við fengnar til að endurraða verkum á heimilum og jafnframt finna ný,“ bætir Elísabet við.

Á sama tíma og sýningin opnar í gallerínu verða öll verkin einnig til sýnis á heimasíðu Listvals. Opnunin fer fram á milli klukkan 12:00 og 17:00 á laugardag. Sýningin stendur til 7. janúar en opið verður á virkum dögum frá 12:00 til 18:00 og á milli 12:00 og 16:00 um helgar.


Tengdar fréttir

„Alltaf fundist þessar rætur stækka mig sem manneskju“

„Ég hef haft ástríðu fyrir myndlist síðan ég man eftir mér,“ segir listakonan Áslaug Íris Katrín. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá nústandandi einkasýningum hennar og listræna lífinu.

Listaverk sem fagna nýju lífi

Kristín Morthens vann verk á nýrri sýningu sinni út frá minni tilfinninga fyrir og eftir fæðingu. Sýningin opnaði síðastliðna helgi í NORR11 í samvinnu við Listval og heitir Að snerta uppsprettu.

Rauði þráðurinn er hundur að skíta

Listamaðurinn Þorvaldur Jónsson (f.1984) opnar sýninguna Hundurinn er til staðar í NORR 11 í dag klukkan 16:00. Sýningin er unnin með Listval og rauður þráður sýningarinnar er hundur að skíta. Blaðamaður hafði samband við Þorvald og fékk að forvitnast um sýninguna.

„Myndlist er svo fjölbreytt og víðfeðm“

Listval stendur að myndlistarsýningunni Mens et Manus sem opnaði á síðastliðinn föstudaginn við hátíðlega athöfn í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Er sýningin sú fyrsta í röð sýninga sem Listval mun setja upp í sendiráðinu. Blaðamaður tók púlsinn á Helgu Björg Kjerúlf og Elísabetu Ölmu Svendsen, eigendum og stjórnendum Listvals.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×