Menning

„Alltaf fundist þessar rætur stækka mig sem manneskju“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listakonan Áslaug Íris Katrín var að opna einkasýninguna Bergmál.
Listakonan Áslaug Íris Katrín var að opna einkasýninguna Bergmál. Listval

„Ég hef haft ástríðu fyrir myndlist síðan ég man eftir mér,“ segir listakonan Áslaug Íris Katrín. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá nústandandi einkasýningum hennar og listræna lífinu.

Síðastliðinn föstudag opnaði Áslaug sýninguna Bergmál í Listval á Granda. 

„Á sýningunni kannar hún óhlutbundin form innan myndflatarins, þar sem negatíf og positíf form eru endurtekin milli verka þar sem þau mynda nýja myndbyggingu hverju sinni og taka á sig nýja merkingu, abstrakt innan abstraktsins,“ segir í fréttatilkynningu frá Listval.

Mynd af einkasýningu Áslaugar sem ber nafnið Bergmál.Listval

Lifði sig inn í listaverkin

„Ég hef alltaf verið mjög sjónrænt hugsandi og með mikla rýmisskynjun og unni mér alltaf best við að teikna og mála. 

Ég var svona barn sem lifði mig inn í listaverkin á heimili ömmu minnar og afa, bjó til sögur út frá þeim og teiknaði upp eftir þeim,“

segir Áslaug um það hvenær áhugi hennar á list kviknaði fyrst. 

Grunnur að sýningunni Bergmál varð til fyrir þremur árum síðan.Kristín S. Pétursdóttir

Áslaug laðast að lifandi hefð óhlutbundins myndmáls sem gefur henni rými til þess að vinna með myndheim sinn á rökrænan hátt án fyrirfram gefins ramma. Við gerð sýningarinnar sótti hún meðal annars innblástur í eldri verk sín.

Áslaug notast við ólíka miðla í listsköpun sinni og má þar nefna grjót, steinefni, blýant, vatnsliti og málningu.Listval

Síbreytileg endurtekning

„Ég dró fram nokkur pappírsverk sem ég hafði stungið ofan í skúffu fyrir þrem árum síðan og ákvað að vinna sýninguna áfram út frá þeim. 

Myndbyggingin er fengin frá eldra vatnslitaverki eftir mig þar sem ég dreg fram form verksins og leik mér að þeim í endurtekningu en þó með síbreytilegum hætti.

Grunnur sýningarinnar varð sem sagt til fyrir rúmum þremur árum síðan en ég byrjaði svo markvisst að vinna að sýningunni núna í haust.“

Meðal verka á sýningunni Bergmál.Listval

Teningar við aðra menningu

Í fréttatilkynningu frá Listval kemur meðal annars fram að Áslaug vinni með tungumál lita, efnisvals og myndbyggingar, frekar en bókstaflegar myndlíkingar. 

„Merkingin er fólgin í forminu og í efnisvali. Grjót, steinefni, blýantur, vatnslitir og málning eru allt efnisþættir sem Áslaug nýtir sér í verkum sínum og á sér einnig hliðstæðu í náttúrunni.“

Þá segir einnig að litaval hennar sé ákveðið og skýrt en að baki liggur tungumál hins óhlutbundna sem er alþjóðlegt og byggir á sammannlegum tilfinningum, næmni okkar og innsæi.

Rætur Áslaugar hafa mótað hana og hennar listsköpun.Kristín S. Pétursdóttir

„Eitt af því sem ég held að hafi haft mikil áhrif á sjálfsmynd mína og þar af leiðandi myndlistina mína er að hafa alist upp með tengingar til annarra landa og annarrar menningar,“ segir Áslaug og bætir við:

„Partur af fjölskyldu minni tengist Ítalíu, Grikklandi og Frakklandi og mér hefur alltaf fundist þessar rætur stækka mig sem manneskju og mína heimsmynd.

Ég leyfi mér að ferðast lengra í huganum og vinna með efnivið og „element“ sem mér þætti kannski annars ekki vera mitt að vinna með.“
Eitt af verkum Áslaugar sem er á sýningunni en litaval Áslaugar er ætíð ákveðið og skýrt.Kristín S. Pétursdóttir

Stór og smá verkefni á döfinni

Sýningin Bergmál er opin föstudaga og laugardaga á milli klukkan 13:00 og 16:00 í Listval Granda sem er staðsett við Hólmaslóð 6. Einnig er hægt að heimsækja sýninguna utan auglýsts opnunartíma eftir samkomulagi við Áslaugu sjálfa eða starfsfólk Listval.

Sýningin Bergmál stendur til 17. desember næstkomandi.Kristín S. Pétursdóttir

Áslaug opnaði aðra einkasýningu á dögunum í Neskirkju.

„Hún nefnist Skil | Skjól og stendur yfir til 21. febrúar. Svo eru alls konar spennandi verkefni framundan á nýju ári, stór og smá.“


Tengdar fréttir

Listaverk sem fagna nýju lífi

Kristín Morthens vann verk á nýrri sýningu sinni út frá minni tilfinninga fyrir og eftir fæðingu. Sýningin opnaði síðastliðna helgi í NORR11 í samvinnu við Listval og heitir Að snerta uppsprettu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×