Bíó og sjónvarp

Nágrannar fengu fjármagn og fara ekki fet

Elísabet Hanna skrifar
Karl og Susan Kennedy snúa aftur í nýrri seríu.
Karl og Susan Kennedy snúa aftur í nýrri seríu. Skjáskot/Faith Moran

Sápuóperan Nágrannar kvaddi skjáinn fyrr á árinu eftir 37 ár í sjónvarpi. Tárin féllu þegar Nágrannarnir sögðu bless og voru aðdáendur um heim allan í öngum sínum. Þeir geta þó tekið gleði sína á ný þar sem ný þáttaröð er væntanleg.

Nýja heimili þáttanna er á Amazon AVOD streymisveitunni Freevee og mun fyrsta þáttaröðin frá þeim koma út á síðari hluta næsta árs. Streymisveitan hefur einnig tryggt sér rétt á þúsundum fyrri þátta af Nágrönnum. Á þeim tíma sem framleiðslunni var hætt var það vegna þess að áframhaldandi samningar um sýningu þáttanna í Bretlandi náðust ekki og því skorti fjármagn.

Susan og Karl snúa aftur

Þættirnir fjalla um nágranna sem búa á Ramsay götu í Erinsborough í Ástralíu. Stefan Dennis, Alan Fletcher, Ryan Moloney, og Jackie Woodburne munu snúa aftur í hlutverk sín. Þau eru eflaust betur þekkt sem Paul Robinson, Karl Kennedy, Toadie Rebecchi og Susan Kennedy.

Í lokaþættinum sem sýndur var í sumar sneru stjörnurnar Kylie Minogue, Guy Pearce, Jason Donovan, og Margot Robbie aftur á götuna góðu en öll voru þau leikarar í þáttunum á sínum tíma.


Tengdar fréttir

Sápuóperur: 65 ár í sama hlutverkinu, stökkpallur og rokkari

Sápuóperur eiga það til að fanga hug og hjörtu aðdáenda sinna sem byrja að tengja við persónurnar sem fylgja áhorfendum í fjölda ára. Í tilefni þess að Nágrannar eru að segja skilið við skjáinn er tilvalið að líta til baka og sjá hvaða persónur hafa verið lengst á skjánum hjá þeim og í sambærilegum þáttum.

Tárin féllu þegar Nágrannar kvöddu

Búið er að taka upp síðasta atriðið í áströlsku sápuóperunni Nágrönnum sem eru að hætta eftir 37 ár í sjónvarpi. Tárin féllu þegar Nágrannanir sögðu bless.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×