Lífið

Sögð ætla að halda tryggð við Adam Levine

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Það hefur gustað um poppstjörnuna Adam Levine undanfarið og sögurnar sem berast af honum eru hreint ótrúlegar. Þrátt fyrir það er eiginkona hans, Behati Prinsloo, sögð ætla að halda tryggð við hann og fjölskylduna.
Það hefur gustað um poppstjörnuna Adam Levine undanfarið og sögurnar sem berast af honum eru hreint ótrúlegar. Þrátt fyrir það er eiginkona hans, Behati Prinsloo, sögð ætla að halda tryggð við hann og fjölskylduna. getty

Þrátt fyrir allt virðist skilnaður ekki vera í farvatninu hjá poppstjörnunni Adam Levine. Eiginkona hans, fyrirsætan Behati Prinsloo, er sögð ætla að halda tryggð við Levine en hún gengur með þeirra þriðja barn um þessar mundir.

Þetta þriðja barn þeirra hjóna kom einmitt við sögu þegar fregnir bárust af framhjáhaldi Adam Levine sem hann gekkst við, að einherju leyti að minnsta kosti. Í instagram-skilaboðum sem viðhald Levine, fyrirsætan Sumner Stroh, birti á samfélagsmiðlum, biður Levine hana um leyfi til að skíra barnið í höfuð hennar, hvorki meira né minna. Sumner kveðst hafa átt í kynferðislegu sambandi við Adam Levine í rúmt ár. 

Adam Levine og Behati Prinsloo giftu sig árið 2014. Samkvæmt heimildum Elite daily, sem hefur eftir heimildamanni People ætlar Prinsloo að halda tryggð við Levine. Innherji og upplýsingamaður blaðsins segir Prinsloo „hundrað prósent á bandi fjölskyldunnar“ og virðist á þeirri skoðun að eiginmaðurinn sé mjög opinn með tilfinningar sínar og að reyna allt í sínu valdi til að bæta stöðuna. Hann vilji alls ekki skilnað.

Frá því að Sumner Stroh greindi frá meintu framhjáhaldi hafa fleiri stjörnur tekið í sama streng og birt skilaboð sem söngvarinn á að hafa sent þeim, þar sem hann daðrar við þær. Grínistinn Maryka og Alyson Rosef eru meðal þeirra kvenna. Alyson sagðist hafa birt samskiptin því hún vorkenni eiginkonu hans og hvetur aðrar konur til þess að gera slíkt hið sama.


Tengdar fréttir

Adam Levine og Behati Prinsloo eiga von á barni

Maroon 5 söngvarinn góðkunni Adam Levine og fyrirsætan Behati Prinsloo eiga von á sínu þriðja barni saman samkvæmt heimildum People. Parið gifti sig árið 2014 og rekur saman Calirosa vínframleiðsluna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×