Aston Villa tókst ekki að nýta liðsmuninn gegn Leeds

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ekki góð úrslit fyrir Gerrard.
Ekki góð úrslit fyrir Gerrard. vísir/Getty

Leeds United og Aston Villa gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust á Elland Road í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir markalausan fyrri hálfleik vænkaðist hagur gestanna verulega strax í upphafi síðari hálfleiks þegar Kólumbíumaðurinn Luis Sinisterra, sóknarmaður Leeds, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Þrátt fyrir að vera einum fleiri nær allan seinni hálfleikinn tókst lærisveinum Steven Gerrard ekki að nýta sér liðsmuninn en sóknarleikur liðsins hefur ekki verið góður í upphafi móts enda hefur liðið skorað aðeins sex mörk í fyrstu átta leikjunum.

Lokatölur 0-0 og bæði lið áfram um miðja deild.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira