Udinese á toppinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Udinese lagði Inter.
Udinese lagði Inter. EPA-EFE/GABRIELE MENIS

Udinese tók á móti Inter í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, í dag. Udinese vann 3-1 sigur og tyllti sér á topp deildarinnar.

Nicolò Barella kom gestunum í Inter yfir strax á fimmtu mínútu leiksins og Mílanóliðið í paradís. Það entist þó ekki lengi þar sem miðvörðurinn eftirsótti Milan Škriniar varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 22. mínútu leiksins og staðan orðin 1-1.

Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik og allt jafnt þegar liðin gengu til búningsherbergja. Það stefndi í jafntefli allt þangað til Jaka Bijol stýrði hornspyrnu Gerard Deulofeu frábærlega í fjærhornið á 85. mínútu. Algjörlega óverjandi fyrir Samir Handanović í marki Inter.

Staðan orðin 2-1 heimaliðinu í vil og þegar komið var vel inn í uppbótartíma gulltryggði Tolgay Arslan sigurinn með flugskalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf Deulofeu frá hægri. Fleiri urðu mörkin ekki og 3-1 sigur heimamanna staðreynd. 

Udinese þar með komið á topp Serie A með 16 stig eftir sjö leiki en Napoli, Atalanta og AC Milan eru öll með 14 stig og leik til góða. Inter er á sama tíma í 6. sæti með 12 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira