Menning

Setur upp listasýningu til heiðurs ömmu sinni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
JóiPé ásamt ömmu sinni en hann var að opna listasýningu henni til heiðurs.
JóiPé ásamt ömmu sinni en hann var að opna listasýningu henni til heiðurs. Aðsend

Fjöllistamaðurinn JóiPé hefur löngum verið tengdur við íslensku tónlistarsenuna en ásamt því að semja og flytja tónlist er hann myndlistarmaður. JóiPé opnar listasýningu á morgun í Gróskusal á Garðatorgi sem er tileinkuð ömmu hans, Margréti Thorlacius, en þau hafa alltaf átt sterkt og gott samband að sögn Jóa. 

Blaðamaður tók púlsinn á JóaPé og fékk að heyra frá hans listræna ferli og söguna á bak við sýninguna.

Hvaðan sækirðu innblástur fyrir sýningunni og hver er tengingin við ömmu þína?

Fyrir þessa sýningu sótti ég innblástur frá ömmu minni en þessi sýning er tileinkuð henni. Amma mín er stórmerkileg kona sem ég lít upp til. Það hefur alltaf verið sterk tenging á milli okkar og saman höfum við baukað margt. Með henni lærði ég að dunda mér og trúa á sjálfan mig. 

Það var sama hvaða hugmynd ég fékk, amma var alltaf móttækileg og til í að hjálpa mér að framkvæma hana. Hún hjálpaði mér að finna mína fjöl og ýta mér í þá átt sem mig langaði að fara.
JóiPé með ömmu sinni á foropnuninni.Aðsend

Hefur sýningin verið lengi í bígerð?

Hugmyndin kom fyrst fyrir tveimur árum en síðan þá hefur hún þróast mikið. Fyrst átti sýningin bara að innihalda málverk en svo breyttist það í prentverk og myndbandsverk.

Prentverk eftir JóaPé af Margréti Thorlacius, ömmu sinni.Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við að mála?

Mér finnst skemmtilegast þegar ég kemst í góðan og gír og gleymi mér alveg. Þetta getur verið mjög góð hugleiðsla og ég leita reglulega í hana. 

Ég er með mikla sköpunarþörf og þá er gott að geta gripið í pensilinn.

Hvaðan færðu oftast hugmyndirnar?

Ég fæ hugmyndir bara hér og þar en ég sæki mikinn innblástur inn á Pinterest, það er hægt að finna alls konar töff hluti þar. 

Svo fæ ég líka bara innblástur frá fólkinu í kringum mig og fyrir þessa sýningu er amma mín aðal innblásturinn.
Vinir og fjölskylda JóaPé mættu á foropnun síðastliðinn þriðjudag.Aðsend

Hvenær opnar sýningin og hvað stendur hún lengi?

Síðastliðinn þriðjudag var sýningin bara opin fyrir fjölskyldu og vini en næstu helgi verður hún opin öllum frá klukkan 13:00-15:00 á bæði laugardag og sunnudag.


Tengdar fréttir

„Bless í bili“

Tónlistarmennirnir Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson, einnig þekktir sem Króli og JóiPé ætla að gera upp síðustu sex árin á lokatónleikum sínum saman, í bili. Þeir verða þó ekki einir á sviðinu en Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ætlar einnig að spila með þeim.

Listasýningar með ömmu í æsku kveiktu á sköpunargleðinni

Lágmyndir hafa heillað listamanninn Pétur Geir Magnússon frá ungum aldri og í dag hefur hann fært þær inn í nútímalegt form í listsköpun sinni. Pétur Geir, sem er búsettur og starfræktur í Stokkhólmi, er með bakgrunn í grafískri hönnun en kallar sig hagnýtan myndlistarmann og nálgast listaverk sín á einstakan hátt. Pétur Geir er viðmælandi í nýjasta þætti af KÚNST, sem er jafnframt fyrsti þáttur í seríu tvö.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×