Ron­aldo komst á blað er Man Utd vann í Mol­dóvu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Cristiano Ronaldo skoraði fyrsta mark sitt á tímabilinu í kvöld.
Cristiano Ronaldo skoraði fyrsta mark sitt á tímabilinu í kvöld. Ash Donelon/Getty Images

Erik ten Hag stillti upp sínu allra sterkasta byrjunarliði enda spilaði Man United ekki um síðustu helgi sem og liðið á frí um komandi helgi vegna andláts Elísabetu II Breta drottningar. Eftir að hafa tapað 0-1 gegn Real Sociedad í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar kom ekkert annað en sigur til greina hjá gestunum.

Jadon Sancho kom gestunum yfir á 17. mínútu með frábærri afgreiðslu og hann var nálægt því að tvöfalda forystuna tæpum tuttugu mínútum síðar en skot hans var hreinsað af línu. Örskömmu síðar var brotið á Diogo Dalot innan vítateigs og vítaspyrna dæmt.

Cristiano Ronaldo fór á punktinn og þrumaði boltanum í netið. Hans fyrsta mark á tímabilinu og Man Utd með 2-0 forystu í hálfleik. Fleiri urðu mörkin ekki í kvöld og lokatölur því 2-0 gestunum í vil.

Í hinum leik riðilsins vann Real Sociedad 2-1 sigur á Omonia frá Kýpur. Er spænska liðið því á toppi riðilsins með sex stig að loknum tveimur umferðum, Man Utd og Sheriff eru með þrjú á meðan Omonia er án stiga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira