Fagnaði með grímu og gerði þjálfarann sinn brjálaðan Sindri Sverrisson skrifar 12. september 2022 07:31 Chovanie Amatkarijo tók upp appelsínugula grímu og setti á sig þegar hann fagnaði marki. Skjáskot/Discovery+ Chovanie Amatkarijo skoraði bæði mörk Östersund í dýrmætum sigri gegn Örebro í sænsku 1. deildinni í fótbolta um helgina en gerði þjálfara sinn samt foxillan.
Amatkarijo ákvað að fagna seinna marki sínu í leiknum með því að setja á sig appelsínugula grímu. Fyrir það fékk hann gult spjald og þar sem að þetta var þriðja áminning hans á tímabilinu fékk hann eins leiks bann í kjölfarið. Þrátt fyrir sigurinn er Östersund í fallsæti, næstneðst í deildinni og enn fimm stigum á eftir næstu liðum; Norrby og Örgryte sem leikur undir stjórn Brynjars Björns Gunnarssonar. Magnus Powell, þjálfari Östersund, sagði alveg ljóst að Amatkarijo yrði skammaður fyrir háttalag sitt: „Þetta var algjör vitleysa, hann fagnaði með grímu. Og hann verður í banni í næsta leik. Við þurfum að eiga langt samtal,“ sagði Powell við Östersunds-Posten. Sjálfur sagðist Amatkarijo hafa verið að vísa í japanska teiknimyndaseríu með fagnaðarlátum sínum: „Mér finnst gaman að horfa á mangaseríu sem kallast Naruto og þess vegna fagnaði ég svona,“ sagði Amatkarijo en sú afsökun féll ekki beinlínis vel í kramið hjá Powell: „Það skiptir ekki máli því þetta er djöfulsins ömurleg hegðun. Framtíð alls félagsins er í húfi,“ sagði Powell.
Sænski boltinn Fótbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira