Fótbolti

Samúel Kári á leið til Grikklands

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Samúel Kári Friðjónsson er á leið til Grikklands.
Samúel Kári Friðjónsson er á leið til Grikklands. Vísir/Vilhelm

Knattspyrnumaðurinn Samúel Kári Friðjónsson er á leið til gríska félagsins Atromitos frá Viking í noregi.

Norskir fjölmiðlar greina frá því að Viking sé í þann mund að selja Samúel frá félaginu og umboðsmaður hans staðfesti það svo við Fótbolti.net að miðjumaðurinn væri á leið í læknisskoðun.

Samúel er samningsbundinn norska félaginu fram að áramótum, en töluverður áhugi hefur verið á honum. Þar á meðal eru lið frá Spáni og Austurríki, en Samúel er nú á leið til Grikklands.

Hjá Atomitos mun Samúel hitta fyrir annan Íslending, en félagið fékk Selfyssinginn Viðar Örn Kjartansson í sínar raðir fyrr í sumar.

Þá hefur Grikkland verið nokkuð vinsæll áfangastaður íslenskra knattspyrnumanna í sumar. Ásamt Samúel og Viðari hafa þeir Guðmundur Þórarinsson og Hörður Björgvin Magnússon gengið til liðs við lið í Grikklandi í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×