Fótbolti

Hákon og Ísak unnu öruggan sigur gegn lærisveinum Freys

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson voru báðir í byrjunarliði FCK í kvöld.
Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson voru báðir í byrjunarliði FCK í kvöld. Lars Ronbog/Getty Images

Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson voru báðir í byrjunarliði FCK er liðið vann öruggan 0-3 útisigur gegn Íslendingaliði Lyngby undir stjórn Freys Alexandersonar í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

 Hákon lék allan leikinn í liði FCK, en Ísak Bergmann var tekinn af velli eftir tæplega klukkutíma leik. Sævar Atli Magnússon var hins vegar ónotaður varamaður í liði Lyngby.

Gestirnir í FCK tóku forystuna strax á 15. mínútu leiksins áður en liðið tvöfaldaði forystuna snemma í síðari hálfleik.

Gestirnir gerðu svo út um leikinn með marki á 53. mínútu og niðurstaðan því 0-3 sigur FCK. Liðið situr nú í fjórða sæti deildarinnar með níu stig eftir sex leiki, sjö stigum meira en nýliðar Lyngby sem sitja í næst neðsta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×