Menning

Vopnuð vasaljósum á sýningu sjóðheits listamanns

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sýning Péturs Geirs, Annarskonar Annaspann, hefur gengið vel.
Sýning Péturs Geirs, Annarskonar Annaspann, hefur gengið vel. Jónas Alfreð Birkisson

Pétur Geir Magnússon opnaði sýninguna Annarskonar Annaspann síðastliðna helgi við góðar viðtökur. Yfir 200 manns mættu á opnunina og Pétur hefur nú þegar selt rúmlega helming verkanna.

Blaðamaður ræddi fyrst við Pétur fyrir opnun þar sem hann segir kveikjuna að sýningunni hafa sprottið upp úr flutningum sínum til Stokkhólms síðasta haust.

Þetta er aðeins önnur listasýning Péturs en á fyrstu sýningu sinni seldust öll verkin upp á nokkrum dögum. Hann sérhæfir sig í lágmyndum og segir fólk greinilega spennt fyrir þeim.

„Sýningin hefur gengið vonum framar. Mér finnst mikil hrifning vera með þetta, fólk er mjög sátt. Þetta er náttúrulega sölusýning sem hefur gengið mjög vel og fólk er virkilega að fíla þetta format sem lágmyndin er.“

Íslenska sólarljósið fullkomið

Sýningargestum gefst tækifæri á að nýta sér vasaljós á staðnum til að sjá hvernig ólík birtuskilyrði vinna með myndunum.

„Þannig getur fólk leikið sér að því hvernig sólarljósið hefur áhrif á það hvernig myndin fer á flug og hreyfingu. Það breytist eftir því hvort það sé vetrar eða sumarsól en aðfall sólarinnar getur alltaf haft aukin áhrif á myndina. Við búum svo náttúrulega í fullkomnu landi fyrir lágmyndir, með svo sérstaka birtu af sólarljósi og ég tala nú ekki um á sumrin. Þú færð alltaf einhverja breidd af sólinni hér þar sem hún skín aldrei ofan á þig heldur á þig.“

Safnar verkum Péturs

Pétur segist hafa vitað að viðfangsefni hans í listinni væri eftirsóknarvert, þar sem fyrsta sýning hans gekk mjög vel.

„Það var fyrsta sýningin mín og ég var í smá í sjokki, rosalega þakklátur og þetta var mjög gaman.“

Hann grunaði því að þetta yrði ekki lengi að fara út í þetta skiptið.

„Safnarar eru farnir að kaupa af mér núna og einn tilkynnti mér að hann er farinn að safna verkunum mínum, sem mér þótti mjög vænt um. 

Hann á nú fjögur verk eftir mig og það er dásamlegt að vita af því.“
Pétur segir verkin sín bjóða upp á eitthvað fyrir alla.Aðsend

Aðspurður hvað hann telji ná sem mest til fólks í verkum sínum segir Pétur:

„Þetta er gamalt listform sem er tekið í nútímalegt ívaf og er öðruvísi, ferskt og spennandi.

Túlkun mín að gera lágmyndir úr við verður líka til þess að þau geti farið inn í ramma og upp á vegg á heimilum fólks, sem ég held að fólk sé mjög hrifið af. Sjálfar myndirnar eru formhreinar með hreinum flötum og hér er eitthvað fyrir alla.“

Sýningin stendur til og með 21. ágúst næstkomandi í kartöflugeymslunum, Ártúnsbrekku.

„Ég verð á staðnum alla daga frá klukkan 14:00 - 20:00 ef fólk vill bera sýninguna augum og spjalla.“


Tengdar fréttir

„Þetta gefur mér alveg óskaplega mikið“

Listamaðurinn Pétur Geir Magnússon sækir innblástur í náttúruna í sköpun sinni. Hann hefur komið að ýmsum skapandi greinum í gegnum tíðina og hefur augun sífellt opin fyrir nýjum hlutum. Amma hans og afi höfðu mótandi áhrif á myndlistarferil hans en Pétur Geir opnar listasýningu sína Annarskonar Annaspann í dag klukkan 14:00. Blaðamaður tók púlsinn á Pétri Geir og fékk að heyra nánar frá sýningunni og sköpunargleðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×