Geyroro skoraði þrennu þegar Frakkar fóru létt með Ítali

Atli Arason skrifar
Grace Geyoro gerði þrennu fyrir Frakka í dag.
Grace Geyoro gerði þrennu fyrir Frakka í dag. Getty Images

Frakkar tóku forystu í D-riðli okkar Íslendinga þegar þær rúlluðu upp Ítölum með 5-1 sigri.

Þær frönsku skoruðu heil fimm mörk í fyrri hálfleik og var því snemma ljóst í hvað stefndi. Grace Geyoro skoraði fyrsta mark leiksins strax á níundu mínútu þegar hún náði frákastinu inn í vítateig Ítala eftir fyrirgjöf Kadidiatou Diani af hægri sem ítalska vörnin náði ekki að hreinsa burt.

Á 12. mínútu voru Frakkar búnir að tvöfalda forskot sitt og var það mark keimlíkt fyrsta markinu. Sakina Karchaoui, leikmaður Frakklands, átti þá sprett upp vinstri vænginn og fyrirgjöf inn í vítateiginn sem Laura Giuliani, markvörður Ítalíu, sló beint í lappir á Marie-Antoinette Katoto, framherja Frakklands, sem þakkaði pent fyrir sig og skilaði knettinum í netið.

Þriðja mark Frakka skoraði Delphine Cascarino með þrumuskoti fyrir utan vítateig Ítala sem syngur í fjærhorninu.

Þá var röðin komin aftur að Geyoro sem skoraði næstu tvö mörk á síðustu fimm mínútum fyrri hálfleiks. Fyrst tókst henni að komast ein í gegnum vörn Ítala eftir sendingu Katoto en Geyoro gerði sér lítið fyrir og leikur á Giuliani í marki Ítala og skoraði í autt netið.

Geyoro fullkomnaði svo þrennuna sína á 45. mínútu eftir flott samspil hennar og Sandie Toletti. Geyoro fékk boltann við enda vítateigsins og skilaði knettinum innanfótar í netið.

Ítalir gerðu tvöfalda breytingu í hálfleik og komu mun betri út í síðari hálfleikinn. Það dugði þó ekki til fyrir Ítali að vinna síðari hálfleikinn með einu marki gegn engu eftir stórkostlega frammistöðu Frakka í fyrri hálfleik.

Martina Piemonte gerði mark Ítala á 76. mínútu þegar hún kom knettinum í netið með kollinum eftir frábæra fyrirgjöf Lisa Boattin. Meira var ekki skorað og Frakkar tylla sér á topp D-riðils með 3 stig. Næsti leikur Frakka er gegn Belgum þann 14 júlí en sama dag leika stelpurnar okkar við þær ítölsku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira