Portúgal kom til baka og náði í stig gegn Sviss

Atli Arason skrifar
Jéssica Silva mun leiða sóknarlínu Portúgals.
Jéssica Silva mun leiða sóknarlínu Portúgals. EPA-EFE/FOCKE STRANGMANN

Portúgal og Sviss gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik C-riðils á EM í Englandi. Svisslendingar voru tveimur mörkum yfir eftir fimm mínútna leik.

Cuoma Sow skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Sviss með hörkuskoti rétt fyrir utan vítateig Portúgals. Markið kom strax á annari mínútu.

Aðeins tæpum þremur mínútum síðar var Rahel Kiwic búinn að tvöfalda forskot Sviss eftir magnaða sendingu Ramona Bachmann úr aukaspyrnu á miðjum velli. Teixeira Pereira í marki Portúgals vissi ekki hvort hún ætti að koma eða fara til að grípa sendingu Bachmann og varð fyrir rest ekki nægilega vel staðsett þegar Kiwic stangar boltann í netið með höfðinu.

Diana Gomes minnkaði muninn með miklu harðfylgi inn í vítateig Sviss eftir hornspyrnu Portúgals frá vinstri á 58. mínútu. Gomes nær frákasti í tvígang og nær að skófla boltanum yfir línuna til að gera síðasta hálftímann spennandi.

Portúgal jafnar svo metin á 65. mínútu þegar Silva kemur boltanum í netið eftir fallega fyrirgjöf Tatiana Pinto af hægri vængnum og þar við sat. Lokatölur 2-2.

Liðin tvö eru því jöfn í efstu tveimur sætum C-riðils, bæði með eitt stig eftir fyrstu umferðina. Svíþjóð og Holland mætast í hinni viðureign riðilsins seinna í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira