Danir enginn fyrirstaða fyrir Þjóðverja

Atli Arason skrifar
Þjóðverjar fagna fjórða marki sínu í leiknum sem Alexandra Popp skoraði.
Þjóðverjar fagna fjórða marki sínu í leiknum sem Alexandra Popp skoraði. Getty Images

Þýskaland hefur EM í Englandi með látum en Þjóðverjar unnu 4-0 stórsigur á Dönum í sínum fyrsta leik á mótinu.

Þjóðverjar hófu leikinn af krafi og skoruðu fyrsta markið strax á 21. mínútu. Eftir vandræðagang í vörn Danmerkur hirti Lina Magull, miðjumaður Þýskalands, boltann af öftustu línu Dana og slapp þar að leiðandi ein í gegn. Eftirleikurinn var auðveldur fyrir Magull sem setti boltann á nærstöng framhjá Christensen í marki Dana.

Snemma í síðari hálfleik tvöfaldaði Lea Schüller forystu Þjóðverja með kollspyrnu eftir hornspyrnu frá vinstri.

Á 78. mínútu bætti Lena Lattwein í forskot Þjóðverja með þriðja markinu eftir þrumuskot á nærstöng af stuttu færi eftir flott samspil Þjóðverja.

Sigur Þjóðverja var aldrei í hættu og snerist leikurinn í kvöld í raun bara um hversu stór sigur Þjóðverja yrði. Alexandra Popp bætti við fjórða og síðasta marki leiksins á 86. mínútu þegar hún skallaði fyrirgjöf Lohmann í net Dana, aftur eftir afar laglegt samspil hjá þýska liðinu.

Kathrine Møller Kühl, 19 ára leikmaður Dana, lét svo reka sig af leikvelli í uppbótatíma síðari hálfleiks þegar hún fékk sitt annað gula spjald. Kühl kom inn á völlinn sem varamaður á 56. mínútu og tókst að næla sér í tvö gul spjöld á rúmum hálftíma.

4-0 sigur Þjóðverja var því staðreynd sem er jafnframt stærsti sigurinn á EM til þessa. Þær þýsku fara því á topp B-riðils, upp fyrir Spánverja sem unnu Finnland 4-1 fyrr í dag í sama riðli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira