Spánverjar komu til baka og sigruðu Finna

Atli Arason skrifar
Mapi Leon lagði upp tvö mörk fyrir Spánverja í dag. Hér er hún í baráttunni við markaskorara Finna, Lindu Sallstrom.
Mapi Leon lagði upp tvö mörk fyrir Spánverja í dag. Hér er hún í baráttunni við markaskorara Finna, Lindu Sallstrom. Getty Images

Spánn er komið á topp B-riðils á EM í Englandi eftir 4-1 sigur á Finnum í fyrstu umferð riðilsins.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Spánverja sem lentu undir strax á fyrstu mínútu. Anna Wasterlund, varnarmaður Finna, á þá langa sendingu fyrir aftan miðlínu sem fer í gegnum miðja vörn Spánverja og beint á Lindu Sallstrom sem klárar snyrtilega í fjærhornið, stöngin og inn.

Spánverjar jafna á 26. mínútu þegar fyrirliðinn Irene Paredes stangar knöttinn í netið eftir hornspyrnu Mariona Caldentey.

Spánn kemst svo yfir rétt fyrir hálfleik og aftur eftir skallamark. Mapi Leon á langa sendingu af vinstri væng sem fer beint á kollinn á Aitana Bonmati sem stýrir boltanum áfram í fjærhornið. Óverjandi fyrir Korpela í marki Finnlands.

Áfram notuðu þær spænsku höfuðið þegar þær skoruðu þriðja mark sitt á 75. mínútu. Spánn fær aukaspyrna á hægri kant sem Mapi Leon tekur. Boltinn berst á nærstöng þar sem Lucia Garcia rís hæst og kollspyrna hennar endar í netinu. 3-1 fyrir Spán.

Caldentey fullkomnar svo góða byrjun Spánverja á Evrópumótinu með marki úr vítaspyrnu á 95. mínútu. Lokatölur 4-1 fyrir Spán.

Spánn er á toppi B-riðils með þrjú stig á meðan Finnar eru á botni riðilsins án stiga. Þýskaland og Danmörk mætast svo seinna í kvöld.


Tengdar fréttir

Sú besta með slitið krossband og missir af EM

Alexia Putellas, handhafi Gullknattarins og miðjumaður Spánarmeistara Barcelona sem og spænska landsliðsins, sleit krossband á landsliðsæfingu og verður frá næstu mánuði. Hún missir því af Evrópumótinu í Englandi sem og stórum hluta næstu leiktíðar. 

Sú marka­hæsta ó­vænt til Mexíkó og ekki með á EM

Spænska landsliðið hefur orðið fyrir miklu höggi í aðdraganda Evrópumótsins sem fram fer í Englandi í júlí. Stórstjarnan Jennifer Hermoso verður ekki með liðinu á mótinu og það sem meira er, hún yfirgefur stórlið Barcelona fyrir lið í Mexíkó.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira