Fótbolti

Ísrael á toppinn í riðli Íslands

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Manor Salomon skoraði bæði mörk Ísraels í kvöld.
Manor Salomon skoraði bæði mörk Ísraels í kvöld. Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images

Ísrael skaut sér á toppinn í 2. riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar í fótbolta með 1-2 útisigri gegn Albaníu í kvöld.

Armando Broja kom heimamönnum í Albaníu yfir með marki af vítapunktinum í uppbótartíma fyrri hálfleiks og staðan var því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Manor Solomon jafnaði metin fyrir gestina með marki á 57. mínútu. Hann var svo aftur á ferðinni stundarfjórðungi síðar þegar hann tryggði ísraelska liðinu 1-2 sigur með góðu marki.

Ísrael er því á toppi riðilsins með fjögur stig eftir tvær umferðir. Íslenska liðið kemur næst í öðru sæti með tvö stig, en Albanir reka lestina með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×