Fótbolti

Salah neitaði að fara í mynda­töku vegna meiðsla og spilaði svo allan leikinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mohamed Salah í leiknum gegn Gíneu.
Mohamed Salah í leiknum gegn Gíneu. EPA-EFE/KHALED ELFIQI

Mohamed Salah var að glíma við meiðsli fyrir leik Egyptalands og Gíneu á sunnudag. Liverpool, atvinnuveitandi hans, bað hann um að fara í myndatöku fyrir leik en hinn 29 ára gamli Salah neitaði.

Salah meiddist undir lok lektíðar með Liverpool og var tekinn af velli eftir rúmlega hálftíma er Liverpool lagði Chelsea í úrslitum FA bikarsins. Hann missti af síðasta deildarleik liðsins og lék svo allan leikinn er Liverpool tapaði í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Salah fór síðan og hitti samlanda sína er Egyptaland undirbjó sig fyrir leik gegn Gíneu í undankeppni Afríkukeppninnar sem fram fer á næsta ári. Liverpool bað framherjann knáa um að fara í myndatöku fyrir leik en Salah neitaði.

Hann bar svo fyrirliðabandið er Egyptaland vann 1-0 sigur þökk sé sigurmarki Mostafa Mohamed á 87. mínútu. Salah spilaði allan leikinn.

„Salah meiddist en gat spilað í gegnum sársaukann,“ sagði Ehab Galal, þjálfari Egyptalands, eftir leik.

Undankeppni Afríkukeppninnar er nýfarin af stað og leikur Egyptaland í D-riðli ásamt Malaví, Eþíópíu og Gíneu. Salah og félagar mæta Eþíópíu á fimmtudaginn kemur áður en þeir mæta Suður-Kóreu í vináttulandseik.

Óvissa ríkri í kringum framtíð Salah sem rennur út á samning sumarið 2023. Hann hefur gefið út að hann muni spila með Liverpool á komandi leiktíð en eftir það standa allar dyr opnar, meira að segja innan Englands.


Tengdar fréttir

Salah mun ekki yfir­gefa Liver­pool í sumar

Mohamed Salah, stórstjarna Liverpool, hefur staðfest að hann muni ekki yfirgefa félagið í sumar. Samningur hans rennur út sumarið 2023. Sömu sögu er að segja af Sadio Mané.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×