Fótbolti

Mæta Pólverjum í general prufunni fyrir EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska kvennalandsliðið leikur aðeins einn leik fyrir EM.
Íslenska kvennalandsliðið leikur aðeins einn leik fyrir EM. vísir/hulda margrét

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir því pólska ytra í eina vináttulandsleik sínum fyrir Evrópumótið í Englandi.

Illa gekk að finna vináttulandsleiki fyrir íslenska liðið eins og Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, rakti í samtali við Vísi í gær.

Nú er ljóst að eini leikur Íslands fyrir EM verður gegn Póllandi 29. júní. Íslenski hópurinn kemur saman til æfinga hér á landi 20. júní og fer til Póllands viku seinna. Íslendingar halda svo til Þýskalands 1. júlí og æfa þar áður en þeir fara til Englands 6. júlí. Fyrsti leikur Íslands á EM er svo gegn Belgíu 10. júlí.

Íslenski EM-hópurinn verður kynntur í næstu viku. Hann verður skipaður 23 leikmönnum.

Ísland og Pólland hafa mæst fjórum sinnum áður í A-landsleik kvenna. Íslendingar hafa unnið þrjá leiki og einu sinni orðið jafnt. Í fyrsta leik þjóðanna, 13. september 2003, vann Ísland 10-0 sigur. Það er stærsti ósigur í sögu pólska landsliðsins. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sína fyrstu þrennu fyrir íslenska liðið í þeim leik.

Pólland er í 33. sæti styrkleikalista FIFA. Pólverjar hafa tapað fjórum af fimm leikjum sínum á þessu ári.


Tengdar fréttir

Svona er EM-búningur Íslands

Nú er ljóst hvernig búningum íslenska kvennalandsliðið mun spila í á Evrópumótinu í Englandi í júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×