Fótbolti

Sjúkrabíll sótti leikmann Barcelona inn á grasið á Nývangi í gærkvöldi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liðsfélagar Ronald Araujo hjá Barcelona fylgjast með því þegar hann er færður inn í sjúkrabílinn.
Liðsfélagar Ronald Araujo hjá Barcelona fylgjast með því þegar hann er færður inn í sjúkrabílinn. AP/Joan Monfort

Barcelona steig stórt skref í átt að því að tryggja sér annað sætið í spænsku deildinni með því að vinna Celta Vigo 3-1 í La Liga í gærkvöldi en óhuggulegur atburður átti sér stað í leiknum.

Barcelona mennirnir Ronald Araujo og Gavi skölluðu þá höfðunum saman um miðjan seinni hálfleikinn. Báðir leikmennirnir fundu vel fyrir þessu og lágu á eftir.

Í fyrstu virtist Ronald Araujo ætla að hrista þetta af sér en hann hneig síðan niður í jörðina eftir að dómarinn flautaði og þá var ljóst að hann hafði fengið mikið högg.

Leikmenn úr báðum liðum komu honum til aðstoðar og þar á meðal var Sergio Busquets sem kallaði strax eftir læknisaðstoð.

Læknaliðið hugaði að Araujo í um tíu mínútur á vellinum og þeir enduðu á því að fá sjúkrabíl til að sækja hann inn á völlinn á Nývangi.

Gavi gat aftur á móti haldið áfram en þegar atvikið var skoðað aftur þá sést að höggið kom á gagnaugað á Araujo.

Barcelona greindi svo frá því að leikmaðurinn fékk heilahristing og var fluttur á sjúkrahús til frekari rannsókna.

Nú er bara að vona að hann nái sér sem fyrst og geti snúið inn á völlinn fljótt aftur.

Ronald Araujo er 23 ára gamall miðvörður frá Úrúgvæ sem hefur spilað með Barcelona frá árinu 2019. Hann hefur lengi verið orðaður við lið Manchester United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×