Tíska og hönnun

Samstarf 66°Norður og Fléttu, Erm og Valdísar Steinarsdóttur öll til sýnis á einum stað

Helgi Ómarsson skrifar
Arnar Ingi Viðarsson, Valdís Steinarsdóttir, Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir
Arnar Ingi Viðarsson, Valdís Steinarsdóttir, Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir Helgi Ómars

Það var mikið stuð og mikil stemning í verslun 66°Norður á Laugavegi en þar voru í gangi þrjár sýningar samtímis.

Hönnunarsdúó-ið Flétta og 66°Norður sameinuðu krafta sína með það að leiðarljósi að fullnýta efni frá framleiðslu 66°Norður. Flétta hefur tekið efnisbúta og afskurði, meðhöndlað þá á mismunadi hátt og unnið saman á mismunandi vegu í leit að ákjósanlegri samsetningu hráefna.

Hönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna SigurðardóttirHelgi Ómars
Verk FléttuHelgi Ómars
Verk frá FléttuHelgi Ómars
Partur af sýningu FléttuHelgi Ómars
Blómavasi úr afgöngum eftir FléttuHelgi Ómars

Erm er samstarf hönnuðanna Arnars Inga Viðarssonar og Valdísar Steinarsdóttur og 66°Norður þar sem hönnuðirnir nýta ermar af ónothæfum dúnúlpum frá merkinu í einstaklega skemmtilega hönnunarvöru í formi stóla og kolla. 

Ermarnar eru saumaðar saman í einskonar rana sem eru svo dregnir upp á stálrör sem hafa verið sveigð til og mynda sæti.

Arnar Ingi Viðarsson og Valdís SteinarsdóttirHelgi Ómars
Arnar Ingi og stóllinn.Helgi Ómars
Erm stóllinn eftir Arnar Inga og Valdísi Steinars úr endurnýttum ermum á úlpum.Helgi Ómars
Verk Arnars Inga og Valdísi SteinarsHelgi Ómars

Samstarf Valdísar Steinarsdóttur og 66°Norður hefur vakið mikla athygli en Valdís fór inn í verkefnið með það að leiðarljósi að þróa nýja aðferð við vinnslu fatnaðar sem leitast við að fullnýta efnið svo það verði engar afklippur og koma þannig í veg fyrir ónothæfa efnisbúta sem enda í ruslinu.

Markmiðið er svo að ná að þróa regnjakka með þeirri aðferð að hella fljótandi efni í form í stað þess að sníða efni og sauma.

Valdís Steinars með verk sín á sýningu 66°NorðurHelgi Ómars
Gestir á sýningunni.Helgi Ómars
Hrefna Rós, Hrafnkell Kaktus og Aldís EikHelgi Ómars

HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar

Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  

Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022


Tengdar fréttir

„Sjálfbærni er lykilþátturinn“

Hönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir stofnuðu Fléttu í byrjun árs 2018 en þær sameina krafta sína með 66°Norður á HönnunarsMars í ár. 

#íslenskflík: Saga 66°Norður stöðugur innblástur

Rakel Sólrós Jóhannsdóttir er partur af hönnunarteymi 66°Norður og er annar viðmælandinn í #Íslenskflík sem er verkefni Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem hér er að finna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×