Tíska og hönnun

„Sjálfbærni er lykilþátturinn“

Helgi Ómarsson skrifar
Stúdíó Flétta
Stúdíó Flétta Lucie Gholam

Hönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir stofnuðu Fléttu í byrjun árs 2018 en þær sameina krafta sína með 66°Norður á HönnunarsMars í ár. 

„Samstarfið við Fléttu kom til eftir að þær höfðu hannað jólaköttinn fyrir Rammagerðina sem var gerður úr notuðum barnafatnaði. 

„Við hjá 66°Norður höfum verið að reyna finna lausnir við að koma efnisafklippum sem ekki hefur verið hægt að endurnýta í fatnað hjá okkur í ferli í stað þess að sóa þeim,“ segir Aldís Eik hjá 66° Norður.

Studio FléttaLucie Gholam

Markmið samstarfsins er að nýta afskurði frá framleiðslu merkisins og gefa því nýtt líf. Flétta nýtist við áhugaverðar leiðir í ferlinu. 

Framúrstefnulegt hönnunarteymi

Bjarney Harðardóttir eigandi 66°Norður segir mikla áskorun að ná að skapa verðmæti úr afskorningum sem ekki er hægt að nýta í framleiðslu vörulínu fyrirtækisins

„Okkar umhverfisstefna snýst um hringrásarkerfi í framleiðslunni þar sem sjálfbærni er lykilþátturinn. Við þurfum alltaf að hugsa út fyrir kassann til að finna nýjar leiðir til að draga úr sóun.“

Studio FléttaLucie Gholam

Sjóða og sauma efni saman

Hún lýsir Studio Fléttu sem skapandi og framúrstefnulegt hönnunarteymi að ferlið hafi verið gefandi og skemmtilegt.

„Þetta samstarfsverkefni okkar sýnir hvað hægt er að gera í skapandi ferli, þær eru búnar að vera í tilraunastarfsemi með afskurðina okkar, sjóða þá, sauma þá saman í ólík form til að skapa nýja vöru. 

Það er gaman að geta unnið að þessari nýsköpun í textíl á þennan hátt."

Studio FléttaLucie Gholam

Hugmyndafræði Fléttu og 66°Norður tala vel saman

„Flétta hefur sterka sýn á að rusl er ekki rusl, heldur að búa til verðmæti úr ruslinu.“ 

„Samtalið hefur verið í gangi í svolítinn tíma og erum við loksins kominn af stað með spennandi og skemmtilegt verkefni sem á vonandi bara eftir að vinda upp á sig. 

Studio FléttaLucie Gholam

Það verður gaman að sýna ferðalagið, hugsunina á bakvið verkin og hvernig við sjáum framtíðina,“ segir Aldís Eik hjá 66°Norður að lokum.

Einkenni Fléttu er að skoða efni sem hafa þjónað sínum tilgang og nýtist kannski ekki á sama hátt og töfra upp nýtt hlutverk í nýju samhengi.

Opnun sýningarinnar er á fimmtudaginn 5. maí milli 16:00 – 18:00 í verslun 66°Norður á Laugarvegi. Sýningin verður svo opin allan HönnunarMars. 


HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar

Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  

Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×