Hvaðan kemur hugmyndin að verkefninu Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum?
Hugmyndin kom útfrá bók sem ég las eftir írska rithöfundinn og listamanninn Tim Robinson sem ber titilinn Experiments on Reality. Titillinn og bókin gripu mig alveg og útfrá því fór af stað þessi hugmyndafræði um tilraunir á raunveruleikanum.
„Ég gerði línuna með í huga hversu óáræðanlegur raunveruleiki er, hann er mjög huglægur.“
Við sem manneskjur reynum að skilgreina raunveruleikann með því að skilgreina, skilja og setja hann í regluverk. Mannlægur raunveruleiki er mismunandi og er ekki hinn sanni raunveruleiki, enda erum við enn að reyna að skilja og skilgreina raunveruleika okkar og það sem við sjáum og skynjum.
Hefur verkefnið verið lengi í bígerð?
Fatalínan og hugmyndafræði hennar var í bígerð veturinn 2021. En línan var frumsýnd á London Fashion Week í febrúar og þar sýndum við Anna Maggý videóverkið sem við unnum saman að.
Sækirðu innblástur í hönnun þína til samtíma málefna?
Já auðvitað, samtímahugmyndir. Það er líka svo áhugavert hvernig það eru oft hugmyndir á sveimi hjá fólki sem hafa kannski ekki hisst eða talað saman en hafa tilfinningu fyrir eitthverju óræðu sem er á sveimi.
Svona „píramítarnir voru byggðir á sama tíma á sitthvorum staðnum a hnettinum með enga möguleika á samskiptum en það voru hugmyndir á sveimi" Það finnst mér ótrúlega áhugavert og það sannar bara hversu óræðinn og óskiljanlegur.

Hvernig varð myndbandið til?
Hugmyndin varð til í símtali, ég talið við Önnu um hugmyndafræðina á bakvið línuna og þessa pælingu um tilraunir á raunveruleikanum. Hún fór strax að pæla í að nýta speglun og eineggja tvíbura og þannig rugla í skynjun manns á videoverkinu.
„Við fengum inn eineggjatvíbura og tókum myndir með endurspeglun af speglafilmu sem gerði videóverkið tvöfalt og fjórfalt.“
Uppsetningin okkar í Gryfjunni í Ásmundarsal endurspeglar svo þetta concept enn frekar og leikum við með þessa tvöföldun og tilraunir á raunveruleikanum. Í dag var leiðsögn um sýninguna og á morgun klukkan tvö er live performance af hönnunar- og vinnuferli línunnar.
HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar.
Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022.