Leão hetja toppliðsins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigurmarkið í uppsiglingu.
Sigurmarkið í uppsiglingu. EPA-EFE/MATTEO BAZZI

Rafael Leão skoraði eina mark leiksins er AC Milan vann 1-0 sigur á Fiorentina í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

AC Mílan tók á móti Fiorentina á San Siro í Mílanó-borg í dag. Staðan var markalaus þangað til portúgalski vængmaðurinn steig upp og tryggði Mílan sigur sem gæti reynst ansi mikilvægur þegar tímabilinu lýkur.

AC Milan er sem fyrr á toppi Serie A, nú með fimm stiga forystu á nágranna sína í Inter sem eiga leik til góða.


Serie A er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 kr. á mánuði. Upplýsingar um beinar útsendingar frá ítalska boltanum má finna hér.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira