Fótbolti

„Ef við drullum upp á bak núna þá erum við í enn verri vandræðum“

Sindri Sverrisson skrifar
Þorsteinn Halldórsson stýrir Íslandi á EM í júlí og vonast til að fara einnig með liðið á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári.
Þorsteinn Halldórsson stýrir Íslandi á EM í júlí og vonast til að fara einnig með liðið á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári. vísir/vilhelm

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, segir ekki koma annað til greina en að leggja allt í sölurnar í Belgrad í dag til að ná sigri gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM.

Ísland mætir Tékklandi ytra á þriðjudaginn í algjörum lykilleik í toppbaráttu C-riðils, þar sem Ísland berst við Tékkland og Holland um efstu tvö sætin. Efsta liðið kemst beint á HM og næstefsta liðið í umspil.

Fyrir fram er Ísland mun sigurstranglegra en Hvíta-Rússland í dag en Þorsteinn segir ekki koma til greina að hvíla leikmenn eða fara varlega í dag eins og hægt væri að gera með leikinn við Tékka í huga:

„Við erum ekki að fara að hvíla einn né neinn. Við mætum með fulla virðingu fyrir andstæðingnum og ætlum ekki að taka sénsa á einu né neinu,“ sagði Þorsteinn á blaðamannafundi í gær.

„Við ætlum að vinna þennan leik, sama hvað við þurfum að gera. Þessi leikur er alveg jafnmikilvægur og leikurinn við Tékka á þriðjudaginn. Ef við drullum upp á bak núna þá erum við í enn verri vandræðum fyrir þriðjudaginn. Við gerum okkur algjörlega grein fyrir því að við erum að fara í leik sem er mikilvægur fyrir okkur,“ sagði Þorsteinn.

Þýðir ekkert hálfkák þó að við vitum að við séum betri

Vinni Ísland bæði Hvíta-Rússland og Tékkland gæti liðinu dugað að ná jafntefli gegn Hollandi á útivelli í september til að tryggja sér efsta sæti riðilsins og farseðil á HM í fyrsta sinn. Holland vann Hvíta-Rússland 2-0 í Minsk á síðasta ári, áður en stríðið í Úkraínu hófst og Hvít-Rússar máttu enn spila á sínum heimavelli, en bæði mörk Hollendinga komu þá eftir 70 mínútna leik.

„Hvít-Rússarnir eru skipulagðir varnarlega. Þær geta alveg varist og sýndu á móti Hollandi að þú þarft að vera hugmyndaríkur, áræðinn og spila af krafti á móti þeim. Það þýðir ekkert hálfkák þó að við segjum við sjálf okkur, trúum því og vitum það, að við séum betri en þær. Við þurfum að vera góð í þessum leik og leggja hart að okkur til að brjóta þær á bak aftur,“ sagði Þorsteinn.

Leikur Hvíta-Rússlands og Íslands hefst klukkan 16 í dag að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×