Sænskar konur uppgötvuðu Öxarfjörð og fóru svo hvergi Kristján Már Unnarsson skrifar 14. mars 2022 12:13 Karin Charlotta Victoria Englund er atvinnumálafulltrúi Norðurþings í Öxarfirði. Einar Árnason Tvær sænskar konur, sem stofnað hafa heimili í Öxarfirði með íslenskum eiginmönnum, eru meðal viðmælenda í þættinum Um land allt á Stöð 2. Báðar eiga sinn þátt í því að börnum hefur farið fjölgandi í sveitinni.
Charlotta Englund er fædd og uppalin í Svíþjóð en flutti til Íslands sem unglingur fyrir um tuttugu árum þegar móðir hennar hóf sambúð með bónda í sveitinni. „Svo endaði ég bara hér. Fór aðeins fram og til baka milli landa,“ segir Charlotta, en hún og eiginmaður hennar, Keldhverfingurinn Tryggvi Hrafn Sigurðsson, búa í nýlegu íbúðarhúsi á nýbýlinu Birkifelli úr landi Sandfellshaga. Charlotta Englund og eiginmaður hennar, Tryggvi Hrafn Sigurðsson, búa ásamt börnum í nýlegu íbúðarhúsi að Birkifelli í Öxarfirði.Einar Árnason Charlotta Englund starfar núna sem atvinnumálafulltrúi Norðurþings og fór fyrir verkefninu Öxarfjörður í sókn. Við spyrjum hvort hún sé orðin meiri Íslendingur en Svíi: „Ætli það ekki, fyrst ég er ekki farin. Ég fer héðan allavega ekki með góðu, held ég.“ -Það er sagt: Glöggt er gests augað. Við Íslendingar sjáum kannski ekki allt sem útlendingar sjá hérna, kostina hérna? „Nei, ég er ekki viss um það. Við höfum auðvitað ákveðið frelsi hérna og umhverfið er stórbrotið. Það er frábært að búa í svona umhverfi,“ svarar Charlotta en héraðið státar af náttúruperlum eins og Ásbyrgi, Jökulsárgljúfrum og Dettifossi og Melrakkasléttu í norðri. Bændurnir á Gilsbakka í Öxarfirði, þau Ann-Charlotte Fernholm og Hafsteinn Hjálmarsson.Einar Árnason Á jörðinni Gilsbakka býr hin sænska Ann-Charlotte Fernholm ásamt eiginmanni sínum, Hafsteini Hjálmarssyni, og tveimur börnum en hann á auk þess tvö börn úr fyrra sambandi. Hafsteinn er einnig aðfluttur, kom í sveitina úr Kópavogi. „Ég var bara hérna sem túristi á ferðalagi. Kom svo árið eftir að vinna. Þá kynntumst við,“ segir Ann-Charlotte. -Hvað sástu við sveitina? „Það voru aðallegar hestar. Ég er hestakona. Svo náttúrlega fallegt fólk,“ segir hún og blikkar til mannsins síns. Jörðin Gilsbakki í Öxarfirði er um fimm kílómetra frá Lundi. Ofar til hægri er bærinn Gilhagi.Einar Árnason „Þetta er bara mjög þægilegt samfélag. Og við viljum hvergi annars staðar vera,“ segir Hafsteinn en þau reka sauðfjárbú á Gilsbakka og heimakjötvinnsluna Sparifé. „Þetta er bara paradís. Náttúran, miðnætursólin, norðurljósin á veturna, þetta er bara æðislegt,“ segir Ann Charlotte um lífið í Öxarfirði. Þessi fyrri þáttur af tveimur fjallar einkum um Kelduhverfi og gamla Öxarfjarðarhrepp en í þeim síðari verður Kópasker heimsótt. Þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld, mánudagskvöld, klukkan 19:10, en einnig má sjá hann á Stöð 2+. Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins:
Um land allt Norðurþing Landbúnaður Byggðamál Matvælaframleiðsla Tengdar fréttir Ullarbændur í Öxarfirði selja lopa beint frá býli Ung hjón sem áttu sér þann draum að setjast að í sveit ásamt börnum sínum þremur ákváðu að gerast ullarbændur í Öxarfirði og selja lopaband beint frá býli. Svo vel hefur gengið að þau hafa vart undan við framleiðsluna. 14. mars 2022 22:44 Stórfelld uppbygging seiðaeldis við Kópasker Einhver mesta uppbygging í sögu Öxarfjarðar fer nú fram við Kópasker. Þar er risin 2.400 fermetra bygging sem fullyrt er að sé stærsta hús í sögu héraðsins. 19. júlí 2021 22:57 Demantshringurinn formlega opnaður Demantshringurinn var formlega opnaður við hátíðlega athöfn í gær, þegar þrír ráðherrar klipptu á borða sem var strengdur yfir nýjan Dettifossveg mitt á milli Dettifoss og Ásbyrgis. 7. september 2020 09:02 Byrja eftir helgi að malbika síðasta kaflann milli Ásbyrgis og Dettifoss Vinna við Dettifossveg gengur vel og verður byrjað að malbika síðasta kaflann milli Ásbyrgis og Dettifoss eftir verslunarmannahelgi. Verktakinn segir að þetta verði einn fallegasti vegur landsins. 27. júlí 2020 23:13 Nýjasta eyðibyggðin er á Melrakkasléttu Norðurströnd Melrakkasléttu er nýjasta eyðibyggð Íslands eftir að heilsársbúsetu lauk á síðustu sveitabæjum milli Leirhafnar og Raufarhafnar. 20. mars 2017 21:45 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira
Ullarbændur í Öxarfirði selja lopa beint frá býli Ung hjón sem áttu sér þann draum að setjast að í sveit ásamt börnum sínum þremur ákváðu að gerast ullarbændur í Öxarfirði og selja lopaband beint frá býli. Svo vel hefur gengið að þau hafa vart undan við framleiðsluna. 14. mars 2022 22:44
Stórfelld uppbygging seiðaeldis við Kópasker Einhver mesta uppbygging í sögu Öxarfjarðar fer nú fram við Kópasker. Þar er risin 2.400 fermetra bygging sem fullyrt er að sé stærsta hús í sögu héraðsins. 19. júlí 2021 22:57
Demantshringurinn formlega opnaður Demantshringurinn var formlega opnaður við hátíðlega athöfn í gær, þegar þrír ráðherrar klipptu á borða sem var strengdur yfir nýjan Dettifossveg mitt á milli Dettifoss og Ásbyrgis. 7. september 2020 09:02
Byrja eftir helgi að malbika síðasta kaflann milli Ásbyrgis og Dettifoss Vinna við Dettifossveg gengur vel og verður byrjað að malbika síðasta kaflann milli Ásbyrgis og Dettifoss eftir verslunarmannahelgi. Verktakinn segir að þetta verði einn fallegasti vegur landsins. 27. júlí 2020 23:13
Nýjasta eyðibyggðin er á Melrakkasléttu Norðurströnd Melrakkasléttu er nýjasta eyðibyggð Íslands eftir að heilsársbúsetu lauk á síðustu sveitabæjum milli Leirhafnar og Raufarhafnar. 20. mars 2017 21:45