Menning

„Efnið er nefnilega lifandi“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listakonan Þóra Sigurðardóttir opnar sýninguna EFNI&RÝMI í dag.
Listakonan Þóra Sigurðardóttir opnar sýninguna EFNI&RÝMI í dag. Aðsend

Listakonan Þóra Sigurðardóttir opnar sýninguna EFNI & RÝMI klukkan 14:00 í dag í sal félagsins íslensk grafík, Hafnarhúsinu, og stendur sýningin til 6. mars næstkomandi.

Þóra Sigurðardóttir á að baki sér langan feril í listheiminum þar sem hún hefur sýnt verk sín reglulega á samsýningum og einkasýningum. Ásamt því hefur hún starfað við listkennslu, sýningarstjórn og gegndi starfi skólastjóra Myndlistaskólans í Reykjavík um árabil. Í dag rekur hún sýningarrými að Nýp á Skarðarströnd ásamt Sumarliða Ísleifssyni.

Á sýningunni verða ætingar sem prentaðar eru af málmplötum á bómullarpappír og teikningar unnar á hörstriga. Í verkum sínum vinnur Þóra með efni, rými og teikningu og er þessi grunnur viðfangsefni í þeim verkum sem hún sýnir nú. Prentverk Þóru eru unnin haustið 2021 á vinnustofudvöl í Feneyjum og á grafíkverkstæðinu í Hafnarhúsi en teikningarnar eru frá síðastliðnum þremur árum. Blaðamaður hafði samband við Þóru um sýninguna, listina og lífið.

Hjónin Þóra og Sumarliði reka sýningarrými að Nýp á Skarðarströnd. Myndin er tekin af Sigrúnu, dóttur þeirra, á sextugsafmæli Þóru á Sikiley.Aðsend

Vinnustofudvöl í Feneyjum

„Ég var svo heppin að fá jákvætt svar við umsókn um vinnustofudvöl á prentverkstæði í Feneyjum síðastliðið haust. Þar byrjaði ég á nýju verkefni, sem var að vinna prentverk í framhaldi af teikningum á striga, sem ég hef verið að vinna með undanfarin mörg ár,“ segir Þóra um hvernig hugmyndin kviknaði að sýningunni EFNI & RÝMI.

Hún segir að verkstæðið í Feneyjum hafi boðið upp á góða vinnuaðstöðu fyrir ýmsar prentaðferðir aðrar en stafrænar og frekar tengdar handverki.

„Það var góð aðstaða og dásamlegt starfsfólk og mér varð vel úr verki. Ég tala nú ekki um hve dásamlegar Feneyjar eru!“

Hið lifandi efni

Þegar Feneyjar dvölinni lauk eftir fimm vikna ævintýri langaði Þóru að þróa verkefnið áfram. Hún sótti því um tímabil á verkstæði félagsins íslensk grafík í Hafnarhúsinu sem og hún fékk í gegn. Þar vann hún í október og nóvember og prentaði af sömu plötum og í Feneyjum.

„Á meðan ég var að vinna var ég að bjóða áhugasömum að koma og sjá hvað ég væri að gera og mörgum þykir gaman að sjá unnið með þessar prentaðferðir. Vinnan með málminn, prentlitinn, pressuna og pappírinn heillar mig mjög. Að vinna með efnið, finna fyrir efninu, vera í samtali við efnið.

Efnið er nefnilega lifandi. Það svarar.“

Í kjölfarið áttaði Þóra sig á því að það væri upplagt að panta tímabil í sýningarrými Grafíkfélagsins.

„Og presentara afraksturinn með formlegum hætti, þannig að allir sem hefðu áhuga á að sjá væru velkomnir! Sýningarrýmið er til húsa við hlið verkstæðisins og er alveg frábært sýningarrými.“

Sýningin EFNI&RÝMI stendur til 6. mars.Aðsend

Mikilvægur stuðningur

Það vildi svo vel til að Þóru bauðst laust tímabil fyrir sýningu og ákvað hún því að slá til.

„Ég vildi líka gjarnan, með því að sýna þróun verkefnisins, þakka fyrir mig og fyrir þann stuðning sem ég hef fengið, meðal annars frá Myndstefi, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og náttúrulega frá félaginu íslensk grafík. 

Stuðningur þessara aðila er mjög mikils virði,“

 segir Þóra að lokum.

Verk Þóru Sigurðardóttur eru í eigu opinberra safna og einkasafna hér á landi og erlendis. Sýningin er í sal Félagsins íslensk grafík, Hafnarhúsi, Tryggvagötu 17 og inngangur snýr að höfninni. Opið á miðvikudögum, fimmtudögum, föstudögum og laugardögum frá klukkan 14:00-17:00.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×