Menning

„Listin er speglun á mínum innri talandi rafmagnaða helli“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Jón Sæmundur Auðarson rekur DEAD Gallery/Studio á Laugavegi 29b
Jón Sæmundur Auðarson rekur DEAD Gallery/Studio á Laugavegi 29b Vísir/Vilhelm

Listin og lífið dansa saman skemmtilegan dans og sumir halda því fram að listina sé að finna allt í kringum okkur.

Í okkar samtíma er listin ekki bundin við eitthvað afmarkað form heldur getur hún birst okkur á ýmsa vegu með fjölbreyttum aðferðum. 

Þættirnir KÚNST rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar og sköpunargleði hjá íslenskum listamönnum ásamt því að fá að skyggnast á bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra. Hér má sjá fyrsta þáttinn en næsti þáttur kemur út í janúar:

Klippa: KÚNST - Jón Sæmundur

Í þessum fyrsta þætti heimsækjum við Jón Sæmund Auðarson sem er gjarnan þekktur sem Nonni í DEAD galleríi. Jón Sæmundur hefur haft áhrif á íslensku list senuna í áratugi með málverkum, bolum og plötuumslögum svo eitthvað sé nefnt. Hann takmarkar sig ekki við strigann þar sem stúdíóið hans er þakið hinum ýmsu listaverkum sem máluð eru til dæmis á hljóðfæri, veggi, flíkur og dauð dýr.

Dauða gallerí þar sem allt er lifandi

Jón Sæmundur stendur fyrir svokallaðri Jóla Jónsmessu í galleríinu sínu nú í desember þar sem hann sýnir bæði ný og eldri verk í bland. Þrátt fyrir að galleríið heiti Dauða galleríið er rýmið stútfullt af lífi og litagleði.

„Fyrir mér verður listin að vera lifandi, það verður að vera einhvers konar andi í verkinu,“ segir Jón Sæmundur og bætir við: „Ég læt verkin helst ekki frá mér nema að það sé kominn andi í það, það sé líf í því.“

Þess vegna líka heitir galleríið dauða galleríið, þessi andstæða við lífið. En svo kemurðu inn og þá er allt svo lifandi. Ég hef alltaf haft gaman að svona þversögnum.

Fangar andana í andartakinu

Fyrir Jóni Sæmundi er listsköpunin andleg iðkun sem kemur fram hjá honum í einhverju flæði. Þegar hann málar er hann ekki með neinar afmarkaðar fyrir fram gefnar hugmyndir um verkið sem slíkt en vinnur þó út frá einhverjum útgangs punktum eins og hauskúpunni eða einhverjum verum. „Svo bara flæðir þetta fram. Ég fanga bara andana í andartakinu og þeir birtast hver af öðrum en enginn eins.“ Náttúruöflin toga líka til hans og hefur eldgosið haft áhrif á hann sem og stormasamir vindar listarinnar,

Það mætti segja að þetta sé svona speglun á mínum hugarheimi og mínum innri talandi rafmagnaða helli.

Verndartákn heimilisins

Listaverk getur verið hlaðið ýmsum táknum og hefur Jón Sæmundur undanfarið verið að vinna að ákveðnu verndarverki fyrir heimili. Hann kallar þau verk Handartak en nafninu svipar til andartaks. Handartaks verkin innihalda ævafornt tákn sem er stundum kallað hamsa höndin eða hönd Fatímu.

„Þetta er svona verndartákn. Það er mjög gott ef maður er með þetta heima hjá sér að hengja það upp þannig að þegar gesti ber að garði sé þetta það fyrsta sem þeir sjá.“ Handartaks verkin eru gerð í nokkrum prentum en Jón ætlar sér að gera fleiri þar sem hvert og eitt verk verður einstakt.

Ævintýrið með Of Monsters and Men

Jón Sæmundur hefur unnið í samstarfi við alls konar listafólk úr ólíkum listmiðlum og þar á meðal verið tengdur inn í tónlistarheiminn. Hann vann að plötuumslagi fyrir íslensku hljómsveitina Of Monsters and Men sem hefur verið að gera góða hluti á alþjóðlegum vettvangi.

Jón Sæmundur ásamt Ragnari Þórhallssyni söngvara Of Monsters And Men og Davíði Arnari Baldurssyni grafískum hönnuði. Saman unnu þeir að plötuumslögum fyrir Fever Dream. Vísir/Vilhelm

„Það var mjög gaman að vinna með krökkunum í Monsters, þá bjó ég til fimm stór verk og það tók nú alveg árið,“ segir Jón Sæmundur um plötuumslag fyrir plötuna Fever Dream sem hljómsveitin gaf út árið 2019. Þetta samstarfs verkefni hlaut aðalverðlaun FÍT, íslenskra teiknara, árið 2020.

Jón Sæmundur segist opinn fyrir öllu og hefur einnig verið að vinna með tónlistarfólki erlendis sem og plötufyrirtækjum. „Þannig að verkin mín fara víða á þessu formati, á vínylnum og mér finnst það skemmtilegt þetta format og skemmtileg stærð líka. Þetta er mikið sýnilegra en verk sem einhver kaupir og setur upp á vegg og er með lokað inni heima hjá sér. Eins og bolirnir sem ég hef hannað gera líka, þannig að fleiri fá að njóta listarinnar.“

Málað á dauð dýr og ýmsa hluti

Aðspurður hvort listsköpunin sé bundinn við strigann segir Jón Sæmundur að það hafi aldrei verið svoleiðis hjá sér. Hann hefur gaman að ólíkum listmiðlum og spilar á myndskreyttan gítar í stúdíóinu þar sem tónlist og myndlist sameinast í eitt.

„Eg hef alltaf verið í alls kyns tilraunastarfsemi, málað á dauð dýr og hluti og uppstoppaða hrafna og kisu líka,“ segir hann og bendir á uppstoppaðan kött uppi á vegg sem sjá má í myndbandinu.

Mæðraveldi og föðurleg ímynd í Jesú Kristi

Ímynd Jesú Krists hefur fylgt Jóni Sæmundi frá ungum aldri og á hann gríðarlegt safn af slíkum myndum.

„Ég safna gömlum Jesú myndum og gömlum prentum og svona. Ég nefnilega ólst ekki upp með föður á heimilinu og þetta var bara svona mæðraveldi, konur og ömmur og frænkur og þá fann ég svona föðurlega ímynd í Jesú. Ég kunni náttúrulega allar bænirnar og alinn upp í barnatrú og þegar að ég flutti að heiman þá byrjaði ég að safna þessum myndum sjálfur.“ 

Samkvæmt Jóni er næstum ómögulegt fyrir hann að hætta að safna Jesú myndunum. „Þetta er bara orðin einhver árátta og ég bara get ekki hætt að safna þessu og á bara rosalega mikið af þessu. Ef þið eigið einhverja Jesú mynd sem þið viljið losna við eða vantar að setja á nýtt heimili þá bara endilega kíkið á mig og ég skal taka við henni,“ segir Jón Sæmundur að lokum. Ef þið viljið koma á hann Jesú myndum þá hvet ég ykkur til að kíkja við í Dauðagalleríið á Laugavegi 29b og fá í leiðinni að skyggnast inn í lifandi ævintýraheim andanna. 

Viðtalsþáttinn má finna í heild sinni ofarlega í þessum pistli. 


Tengdar fréttir

Dóra Júlía tekur við Íslenska listanum á FM957

Plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía Agnarsdóttir hefur verið ráðin til Sýnar og fer hún af stað með sinn fyrsta þátt af Íslenska listanum á FM957 á laugardag. 

„Hver plata stendur ein og sér sem lítið meistaraverk“

Aðalverðlaun FÍT, Félag íslenskra teiknara, í ár hljóta Davíð Arnar Baldursson, Jón Sæmundur Auðarson og Ragnar Þórhallsson fyrir plötuumslög Fever Dream sem gefin var út af hljómsveitinni Of Monsters and Men.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×