Bíó og sjónvarp

Telur framtíð Nágranna ekki í hættu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hjónin Susan og Karl Kennedy, leikin af Jackie Woodburne og Alan Fletcher, hverfa kannski ekki af sjónvarpsskjánum.
Hjónin Susan og Karl Kennedy, leikin af Jackie Woodburne og Alan Fletcher, hverfa kannski ekki af sjónvarpsskjánum. Channel 5

Fyrrverandi stjórnandi hjá BBC, ITV og Channel 4 í Bretlandi hefur ekki trú á því að framtíð áströlsku sápuóperunnar Nágranna sé í hættu.

Þetta kom fram í máli Michael Grade í viðtali á BBC Radio 4 í gær. Grade, sem stýrði BBC One, ITV og Channel 4 á árum er lýst sem „þungavigtarmanni“ þegar kemur að sjónvarpi í umfjöllum Deadline um málið.

Greint var frá því um helgina að framtíð Nágranna væri í mikilli hættu þar sem breska sjónvarpsstöðin Channel 5 hafi ákveðið að hætta að greiða fyrir framleiðslu þáttanna.

Án þátttöku breskrar sjónvarpsstöðvar er ekki talið að hægt sé að standa undir framleiðslu þáttanna. Því mun framleiðslu þeirra að óbreyttu verða hætt í sumar.

Grade telur hins vegar að Fremantle Media, framleiðandi þáttanna, muni ekki lenda í vandræðum með að finna nýjan kaupanda í Bretlandi.

„Þættirnir eru með tilbúin áhorfendahóp,“ sagði Grade í viðtali við BBC Radio 4 í gær.

„Ef til vill eru þættinir ekki með nógu stóran áhorfendahóp til að halda auglýsendum hjá Channel 5 við efnið en það mun einhver kaupa þetta. Þetta er stórt vörumerki og það mun fá mikla athygli,“sagði Grade.

Karl og Susan Kennedy, Toadie og aðdáendur þáttanna, sem hafa verið framleiddir í 37 ár, geta því mögulega andað örlítið léttar eftir tíðindi helgarinnar.


Tengdar fréttir

Framtíð Nágranna í mikilli hættu

Óvíst er hvort að framleiðslu áströlsku sápuóperunnar vinsælu Nágranna verði haldið áfram. Sjónvarpsstöðin sem borgar brúsann fyrir framleiðslu þáttanna hefur ákveðið að skrúfa fyrir kranann.

Boða ótrúlega endurkomu Dee þremur árum eftir að tvífari hennar plataði Toadie upp úr skónum

Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar forsvarsmenn Nágranna tilkynntu árið 2016 að hin vinsæla persóna Dee Bliss myndi snúa aftur í þáttinn eftir vofeiglegan dauða hennar 13 árum áður. Í ljós kom þó síðar að um tvífara hennar væri að ræða. Nú hafa aðstandendur þáttarins hins vegar tilkynnt að Dee muni snúa aftur, í alvörunni í þetta skiptið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×