Fótbolti

Mikilvægur sigur hjá Rúnari og félögum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúnar Alex Rúnarsson.
Rúnar Alex Rúnarsson. Plumb Images/Getty Images

Rúnar Alex Rúnarsson og félagar í Leuven unnu mikilvægan sigur á Standard Liege í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 

Þrjú stig skildu liðin að í 12. og 13.sæti deildarinnar þegar kom að leik kvöldsins og stutt niður á fallsvæðið.

Rúnar Alex stóð á milli stanganna hjá Leuven og skartaði hjálm í anda Petr Cech eftir að hafa orðið fyrir höfuðhöggi á dögunum.

Mathieu Maertens kom Leuven í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.

Leuven hélst forystan allt þar til í uppbótartíma venjulegs leiktíma þegar Collins Fai minnkaði muninn fyrir Standard.

Þó ellefu mínútum hafi verið bætt við leikinn tókst Standard ekki að jafna metin á lokamínútunum og 2-1 sigur Leuven staðreynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×