Sjálfsmark tryggði Króötum sæti á HM Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. nóvember 2021 15:58 Króatar eru á leið á HM eftir sigur gegn Rússum í dag. Goran Stanzl/Pixsell/MB Media/Getty Images Króatar stálu efsta sæti H-riðils af Rússum með 1-0 sigri er liðin mættust í Króatíu í dag. Eina mark leiksins var sjálfsmark, en sigurinn tryggði Króötum sæti á Heimsmeistaramótinu í Katar á næsta ári, en Rússar þurfa að fara í gegnum umspil.
Liðin léku við erfiðar aðstæður í dag, en mikil rigning setti svip sinn á leikinn. Króatar voru sterkari aðilinn og sóttu stíft, en erfitt reyndist að finna leið framhjá vel skipulagðri vörn Rússa. Hvorugu liðinu tókst að brjóta ísinn í fyrri hálfleik og því var staðan 0-0 þegar gengið var til búningsherbergja. Í hálfleik bætti mikið í rigninguna og því áttu liðin oft á tíðum erfitt með að spila boltanum á milli sín í seinni hálfleik. Króatar voru þó enn líklegri aðilinn og sóttu án afláts að marki Rússa. Rússneska vörnin hélt þó vel, en heimamenn virtust þó alltaf vera að færast nær því að koma boltanum í netið. Það var ekki fyrr en á 80. mínútu að heimamenn tóku loksins forystuna, en það var þó með hjálp gestanna. Fedor Kudryashov varð þá fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á frekar klaufalegan hátt og heimamenn því komnir 1-0 yfir. Rússar færðu sig framar á völlinn eftir markið en tókst ekki að jafna metin og niðurstaðan því gríðarlega mikilvægur 1-0 sigur Króata. Króatar vinna H-riðil með 23 stig og eru á leið á HM í Katar á næsta ári. Rússar enduðu með 22 stig í öðru sæti og þurfa að fara í gegnum umspil. 🇭🇷🇷🇺⏹️ It's over! #Croatia prevails! 💪#BeProud | #CRORUS | #WCQ | #Vatreni❤️🔥 pic.twitter.com/lQEOithS0j— HNS (@HNS_CFF) November 14, 2021 Þá vann Slóvakía afar sannfærandi 0-6 sigur gegn Möltu þar sem Ondrej Duda skoraði þrennu. Teddy Teuma og Ryan Camenzuli fengu báðir að líta rauða spjaldið í seinni hálfleik og heimamenn enduðu því með níu menn á vellinum. Að lokum vann Slóvenía góðan 2-1 sigur gegn Kýpur og endar því í fjórða sæti riðilsins með 14 stig, líkt og Slóvakía, en meðp verri markatölu.
HM 2022 í Katar Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira