Lífið samstarf

Sló met á Singles Day í fyrra með lokaða stofu

House of Beauty
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir sem er konan á bak við líkamsmeðferðarstofuna The House of Beauty.
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir sem er konan á bak við líkamsmeðferðarstofuna The House of Beauty.

Singles Day er tekinn með trompi í ár hjá The House of Beauty, 25-40% afsláttur af öllum meðferðum og pökkum í sólarhring.

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir sem er konan á bak við líkamsmeðferðarstofuna The House of Beauty en hún tekur þátt í Singles Day og bíður til tilboðssprengju sem fer fram á vefverslun líkamsmeðferðarstofunnar. Hér er hægt að kynna sér SINGLES DAY tilboð The House of Beauty

„Ég ákvað að slá til í fyrra og taka þátt í Singles Day í fyrsta skiptið af alvöru þrátt fyrir að vera með lokaða stofu út af samkomutakmörkunum vegna Covid. Það gekk vonum framar og það var slegið sölumet þannig að það kom ekkert annað til greina en að taka þátt í Singles deginum aftur í ár og bjóða viðskiptavinum uppá ómótstæðileg tilboð.“ Segir Sigrún

„Það skemmtilegasta sem við gerum er að hjálpa fólki við að bæta heilsuna og auka sjálfstraustið," segir Sigrún Lilja.



Sigrún Lilja sem oftast hefur verið kennd við íslenska hönnunarmerkið Gyðju Collection sem hún stofnaði ung að aldri, á nú og rekur líkamsmeðferðarstofuna The House of Beauty, sem á stuttum tíma hefur orðið eftirsóttur viðkomustaður þeirra sem vilja bæta sjálfstraust, líkamlegt form og heilsu.

Án skurðaðgerða og inngripa

The House of Beauty er líkamsmeðferðarstofa sem segja má að sé sú eina sinnar tegundar hér á landi en hún býður upp á sérhæfð meðferðartæki og heildstæðar lausnir fyrir heilsu og líkamlegt útlit, án skurðaðgerða og inngripa.

„Við bjóðum upp á mismunandi líkamsmeðferðir sem við teljum með þeim fremstu í heiminum í dag og sem allar hafa sinn sérstæða fókus.“ Segir Sigrún. „Ætli það megi ekki segja að The House of Beauty sé eins konar mekka líkama og heilsu,“ segir hún, innt eftir því hvernig hún myndi helst lýsa líkamsmeðferðarstofunni, en nýverið fagnaði stofan þriggja og hálfs árs afmæli með glæsilegri stækkun. „Það skemmtilegasta sem við gerum er að hjálpa fólki við að bæta heilsuna og auka sjálfstraustið."

Árangur viðskiptavina hefur þótt mikill og vakið eftirtekt

„Jákvæðar árangurssögur hjá okkur í dag skipta hundruðum. Við þrýstum aldrei á fólk til að birta myndirnar af sér og fara margir í gegn með frábæran árangur sem aðeins þeir og meðferðaraðilar vita af. Það fylgir bara trúnaðinum og er algjörlega eðlilegt miðað við það sem við sérhæfum okkur í, sem eru líkamsmeðferðir. En svo er alltaf sumir sem eru til í að leyfa okkur að birta myndirnar og leyfa fólki að sjá hvað við erum að gera alla daga og okkur þykir mjög vænt um það,“ segir Sigrún.

Fjölda fyrir og eftir mynda viðskiptavina The House of Beauty má sjá á instagrammi stofunnar hér.

Ný meðferð sýnir árangur á hraða sem aldrei fyrr

Sigrún hefur nú bætt við glænýrri og byltingarkenndri meðferð sem nefnist Msculpta PRO. Meðferðin byggir upp vöðva og losar fitu á undarverðan hátt með rafsegulbylgjum.

„Mscultpa PRO er gríðarlega öflug meðferð til að byggja upp vöðva og brenna fitu með nýrri og byltingarkenndri rafsegultækni eða svokallaðri HIFEM tækni.“ Segir Sigrún.

„Mscultpa PRO meðferðin er með þeim öflugri sem við höfum komist í tæri við á þessu sviði, að byggja upp og móta vöðva samhliða því að brenna fitu. Við trúðum því eiginlega ekki hve hratt þessi meðferð mótar líkamann og styrkir vöðva og áttum ekki til orð yfir árangrinum þegar við byrjuðum að prufa hana á starfsfólki áður en við kynntum hana til leiks,“ segir Sigrún ánægð með þessa nýju meðferð sem The House of Beauty bíður upp á. Sjá nánar um Msculpta pro hér.

Meðferðin sem er að byggja upp heilsu og hjálpar til við verki

„Ein af okkar allra vinsælustu meðferðum er Lipomassage Silkligth, ein öflugasta sogæðameðferð sem hægt er að komast í. Fyrir utan að hafa gríðarlega öflug áhrif á mótun líkama, appelsínuhúð, bjúgsöfnun og staðbundna fitu, þá er þetta meðferðin sem margir kjósa að fara í til að halda niðri verkjum, t.d. vegna gigtar- eða stoðkerfisvandamála. 

Við fáum marga gigtarsjúklinga til okkar vikulega sem ná að halda niðri verkjum með því að koma í þessa meðferð. Lipomassage meðferðin bætir blóðflæði og dregur úr bólgum og bjúg. Það skemmtilegasta við starfið er að sjá fólk ná góðri heilsu á ný. Eftir að hafa sjálf misst heilsuna og þurft að berjast fyrir því að ná henni aftur þá fyrst gerði ég mér grein fyrir því hversu dýrmæt heilsan er. Ég brenn fyrir því að aðstoða fólk við að byggja upp heilsuna og þessi meðferð er þar gríðarlega öflugt tæki,“ segir Sigrún.

Ekki krafa um hreyfingu eða sérstakt mataræði

„Við gerum enga sérstaka kröfu um hreyfingu eða mataræði, enda eru þeir sem koma til okkar eins misjafnir og þeir eru margir. Sumir geta einfaldlega ekki hreyft sig og þurfa því aðstoð okkar til að byggja líkamann upp. En við gefum góð ráð hvað varðar t.d. vatnsdrykkju, gufu, góða næringu og ýmis önnur trix til að bæta heilsuna og hjálpa við að hámarka árangur hvers og eins. Svo hvetjum við viðskiptavini til dáða í ferlinu og það hefur alltaf jákvæð áhrif líka,“ segir Sigrún.

En eru meðferðir The House of Beauty fyrir alla?

„Stutta svarið er nei. Þumalputtareglan er sú að þinn árangur er okkar markmið. Ef tilskilinn árangur næst ekki fljótlega eftir að prógramm hefst er mikilvægt að láta meðferðaraðila vita svo hægt sé að gera breytingar á prógramminu. Við erum eins misjöfn og við erum mörg og líkami okkar bregst mismunandi við. Fókusinn hjá okkur er ekki sá að viðskiptavinir missi ákveðinn fjölda kílóa heldur aðstoðum við þá við að vinna á staðbundnum breytingum á fitusöfnun, slappri húð, bjúg, bólgum, slitum og ýmsu öðru. Við fókusum frekar á að árangur sjáist með berum augum og á myndum heldur en að missa ákveðinn fjölda kílóa. Árangur byggist á samstarfi meðferða, meðferðaraðila og viðskiptavinar,“ segir hún.

Afsláttur sem um munar

Singles day er orðinn risa stór dagur í netverslun og er The House of Beauty þar engin undantekning. 

„Þegar ég opnaði stofuna fór ég strax af stað með netverslun þrátt fyrir að selja þjónustu. Það eykur þægindi og sparar bæði viðskiptavinum og ekki síst starfsfólkinu sporin. Það kom strax í ljós að það var gæfuspor enda veigra fæstir sér við að versla sér meðferðir eða makeover á netinu í dag. Við pössum líka að hafa eftirleikinn einfaldan og ekki of bindandi fyrir viðskiptavini sem ég tel skipta miklu máli sérstaklega við sölu á netinu,“ segir Sigrún Lilja og heldur áfram.  

„Við erum með ómótstæðileg tilboð í gangi yfir Singles Day sem gilda aðeins í sólarhring eða til miðnættis í kvöld 11.11 og því borgar sig að hafa hraðar hendur. 30-40% afsláttur af völdum SINGLES DAY RISA SPRENGJUM! Og svo er líka 25% afsláttur af öllum okkar meðferðum og pökkum sem ekki eru á risa sprengi- afslætti! Að auki er MEGA Price drop nokkrum sinnum yfir Singles daginn í klukkutíma í senn af völdum meðferðum og pökkum sem tilkynnt verða á Facebook viðburðinum hér.

Því er tækifærið til að versla sér meðferðir eða makeover pakka á besta verðinu klárlega í dag. Nú er um að gera að grípa tækifærið og byrja að undirbúa sig fyrir jólin með því að versla sér meðferðarpakka á SINGLES DAY tilboðinu og fara svo inní jólahátíðina uppá sitt besta," segir Sigrún að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×