Bíó og sjónvarp

Ver­búð verð­launuð á Spáni

Þorgils Jónsson skrifar
Björn Hlynur og Gísli Örn í hlutverkum sínum.
Björn Hlynur og Gísli Örn í hlutverkum sínum.

Íslenska þáttaröðin Verbúð, hlaut á dögunum dómnefndarverðlaunin á hátíðinni Serielizados Fest á Spáni. Hátt í 40 þættir og heimildarmyndir voru sýnd á hátíðinni.

Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að Verbúð, sem kallast Blackport á ensku, hafi allt það sem þurfi til að gera góðan sjónvarpsþátt. Þar séu frábærir leikarar og fyrirtaks kvikmyndataka og klipping.

Sagan fjalli um mannlíf í litlu þorpi, en engu að síður megi greina þar stærra samhengi við pólitík og feminisma. Þættirnir séu bæði einlægir og fyndnir.

Þetta er ekki fyrsta vegtylla þáttanna, en Verbúð var einnig valin besta sjónvarpsþáttaröðin á evrópsku verðlaunahátíðinni Series Mania sem fram fór í Lille í Frakklandi í september.

Vesturport framleiddi þættina í samstarfi við RÚV, ARTE og Turbine Studios. Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson og Mikael Torfason skrifuðu handrit þáttanna. Gísli Örn,  Björn Hlynur og María Reyndal leikstýra.

Þættirnir eru átta talsins og verður fyrsti þátturinn sýndur á RÚV annan í jólum.

Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Hlynur Haraldsson fara með aðalhlutverk í þáttunum en meðal annara leikara eru Gísli Örn Garðarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Anna Svava Knútsdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon, Hilmir Snær Guðnason, Sverrir Þór Sverrisson, Ingvar E. Sigurðsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Selma Björnsdóttir, Ingrid Jónsdóttir og Jógvan Hansen.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×