Innlent

Bein útsending: Orkuboltar og íþróttir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Börn að leik í Nauthólsvík.
Börn að leik í Nauthólsvík. Vísir/Vilhelm

Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður en tilgangur hans er að vekja athygli á aðstæðum einstaklinga með ADHD. Í tilefni þess standa ADHD samtökin fyrir málþingi er nefnist „Orkuboltar og íþróttir“ sem haldið er í dag frá klukkan 13-16. Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á stöðu einstaklinga með ADHD í íþrótta- og tómstundastarfi.

Á málþinginu verða Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna afhent í fyrsta sinn - einstaklingi sem með mikilsverðum hætti hefur lagt sitt af mörkum til að bæta lífsgæði fólks með ADHD á Íslandi.

Á málþinginu verða kynntar ýmsar nýjar leiðir sem farnar hafa verið í nálgun og vinnu með börnum með ADHD. Börn með ADHD standa frammi fyrir ýmsum áskorunum þegar litið er til íþróttaiðkunar. Að meðtaka fyrirmæli, vinna í stórum hópum og halda aftur af sér á réttum stöðum eru aðstæður sem einstaklingar með ADHD eiga oft erfitt með og geta verið hamlandi þáttur í íþróttastarfi. Því er mikilvægt að þjálfarar og aðrir sem vinna með börn með ADHD séu færir um að sýna skilning og hafi þekkingu á þeim áskorunum sem börn með ADHD standa frammi fyrir. Bæði íþrótta- og tómstundastarf reynir mikið á félagsfærni barna með ADHD sem oft er af skornum skammti. Málþingið fjallar um þær áskoranir sem börn með ADHD mæta í íþrótta-og tómstundastarfi og hvernig hægt er að koma til móts við þeirra þarfir. Kynnt verður nýtt námskeið ADHD samtakanna er nefnist TÍA- tómstundir, íþróttir og ADHD auk þess sem fjallað verður um nokkrar nýstárlegar þjálfunarleiðir sem gefið hafa góða raun í vinnu með börnum með ADHD.

Hvetjum alla til að taka þátt í málþingi ADHD samtakanna og fræðast um hvernig hægt er vinna með styrkleika og hámarka árangur barna með ADHD í íþróttum- og tómstundum.

Dagskrá Málþingsins

12:30 – 13:00 Móttaka og skráning

13:00 – 13:10 Setning málþings – Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna

13:10 – 13:20 Ávarp - Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

13:20 – 13:30 Hvatningarverðlaun ADHD Samtakanna

13:30 – 14:00 TÍA – tómstundir, íþróttir og ADHD - Bóas Valdórsson sálfræðingur MH

14:00 – 14:30 YAP – Young Ahlete Project- Hreyfiáætlun

  • Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri, Heilsuleikskólinn Skógarás.
  • Ásta Katrín Helgadóttir íþróttakennari/fagstjóri hreyfingu, Heilsuleikskólinn Skógarás.

14:30 – 14:45 Gunnar Helgason kynnir bókina „ Alexander Daníel Hermann Dawidsson, BANNAÐ AÐ EYÐILEGGJA“

14:45 – 15:00 KAFFIHLÉ

15:00 – 15:30 Ævintýrabúðir og íþróttastarf SLF - Margrét Vala Marteinsdóttir, Styrktarfélagi Lamaðra og fatlaðra

15:30 – 16:00 „Sestu, leggstu, hoppa, húlla“ Að styðjast við hund í vinnu með börnum - Gunnhildur Jakobsdóttir, Æfingastöðinni

16:00 Samantekt og málþingsslit

Fundarstjóri: Gunnar Helgason, rithöfundur, leikstjóri og leikari



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×