Menning

Sjarmerandi kosningabarátta í Færeyjum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þessi framboðsauglýsing á girðingu vakti athygli ljósmyndarans.
Þessi framboðsauglýsing á girðingu vakti athygli ljósmyndarans. RAX

„Að upplifa kosningar í Færeyjum er alveg stórkostlegt,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sem hefur farið margar ferðir til Færeyjar að mynda á sínum ferli.

„Það hlýtur að vera ódýrt að fara í framboð því að það eru andlitsmyndir á staurum út um allt.“

RAX segir að þetta sé einmitt sjarminn við Færeyjar. 

Myndir hans af kosningabaráttu í Færeyjum má sjá í þætti vikunnar af RAX Augnablik.

Klippa: RAX Augnablik - Færeyskar kosningar

Tengdar fréttir

„Maður svaf ekki dúr það var svo mikið brölt á þeim“

„Mykines er svolítið erfið eyja eða hefur verið af því að það voru oft svo miklir straumar í kringum eyjuna. Ég held að hún hafi verið áttatíu og eitthvað daga einhvern tímann út af brimi í kringum eyjuna af því að það komst enginn að henni,“ segir Ragnar Axelsson.

RAX Augnablik: „Allt var eins nema hann“

Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, RAX, heimsótti þorpið Elduvík í Færeyjum árið 1997 og náði þar einstökum myndum. Þar á meðal var mynd af nýfæddum litlum dreng sem birtist svo nokkrum árum seinna í bók hans Andlit norðursins.

RAX Augnablik: „Tomas er farinn heim“

„Færeyjar eru alltaf sjarmerandi, það er einn af mínum uppáhalds stöðum og þar er eitthvert besta fólk í heiminum,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×