Bíó og sjónvarp

Edduverðlaunin 2021 afhent: Gullregn sigurvegari kvöldsins

Árni Sæberg skrifar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir afhenti Ragnari Bragasyni og Davíð Óskari Ólafssyni Edduverðlaun fyrir kvikmynd ársins, Gullregn.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir afhenti Ragnari Bragasyni og Davíð Óskari Ólafssyni Edduverðlaun fyrir kvikmynd ársins, Gullregn. Eddan

Edduverðlaunin 2021, uppskeruhátíð íslenska sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðarins sem ÍKSA stendur fyrir voru veitt í kvöld. Annað árið í röð var ákveðið að fresta hátíðarhöldum og voru verðlaunin veitt í sérstökum þætti á RÚV.

Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Þegar innsendingafresti fyrir Edduna árið 2021 lauk þann 11. febrúar síðastliðinn höfðu framleiðendur sent alls 146 verk inn í keppnina. Að auki voru 319 innsendingar til fagverðlauna Eddunnar.

Gullregn með níu verðlaun

Að þessu sinni voru veitt verðlaun í 27 flokkum sem kosin voru af meðlimum ÍKSA. Sigurvegari kvöldsins var kvikmyndin Gullregn í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Hún hlaut alls níu verðlaun. Þar á meðal fyrir kvikmynd, handrit, og leikstjórn ársins. Þá var Sigrún Edda Björnsdóttir valin leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverki sitt í myndinni.

Ráðherrann hlaut flest verðlaun sjónvarpsþátta, þrenn talsins.

RAX Augnablik í framleiðslu Vísis og Stöðvar 2 var valinn menningarþáttur ársins.

Reynir Oddson kvikmyndagerðarmaður hlaut heiðursverðlaun fyrir brautryðjendastarf í þágu íslenskrar kvikmyndamenningar.

Þá voru einnig veitt verðlaun fyrir sjónvarpsefni ársins, áhorfendaverðlaun sem voru valin í rafrænni kosningu. Þar sigraði þátturinn Steinda Con og tók Steinþór Hróar Steinþórsson við verðlaununum.

Hér að neðan er listi yfir verðlaunahafa Eddunnar árið 2021.


Barna- og unglingaefni ársins

  • Stundin okkar
  • Framleitt af RÚV
  • Eva Rún Þorgeirsdóttir, Elvar Örn Egilsson og Ragnar Eyþórsson

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins

  • Kveikur
  • Framleitt af RÚV
  • Fréttastofa RÚV

Heimildarmynd ársins

  • A Song Called Hate
  • Framleitt af tattarrattatt
  • Iain Forsyth, Jane Pollard, Skarphéðinn Guðmundsson og Anna Hildur Hildibrandsdóttir

Íþróttaefni ársins:

  • Áskorun
  • Framleitt af Sagafilm
  • Tinna Jóhannsdóttir

Kvikmynd ársins

  • Gullregn
  • Framleitt af Mystery Productions
  • Ragnar Bragason, Árni Filippusson og Davíð Óskar Ólafsson

Leikið sjónvarpsefni ársins

  • Ráðherrann
  • Framleitt af Sagafilm
  • Hilmar Sigurðsson, Kjartan Þór Þórðarson og Anna Vigdís Gísladóttir

Mannlífsþáttur ársins

  • Nýjasta tækni og vísindi
  • Framleitt af RÚV og Task 4 media
  • Eiríkur Ingi Böðvarsson

Menningarþáttur ársins

  • RAX Augnablik
  • Framleitt af Vísi og Stöð 2
  • Jón Grétar Gissurarson

Skemmtiþáttur ársins

  • Ari Eldjárn – Pardon My Icelandic
  • Framleitt af Made in Iceland Films
  • Ágúst Jakobsson og Ari Eldjárn

Stuttmynd ársins

  • Já-fólkið
  • Framleitt af CAOZ og Hólamói
  • Arnar Gunnarsson og Gísli Darri Halldórsson

Brellur ársins

  • Filmgate, Guðjón Jónsson, Árni Gestur Sigfússon
  • fyrir Ísalög

Búningar ársins

  • Helga Rós V. Hannam
  • fyrir Gullregn

Gervi ársins

  • Áslaug Dröfn Sigurðardóttir
  • fyrir Gullregn

Handrit ársins

  • Ragnar Bragason
  • fyrir Gullregn

Hljóð ársins

  • Huldar Freyr Arnarson
  • fyrir Brot

Klipping ársins

  • Valdís Óskarsdóttir, Sigurður Eyþórsson, Guðlaugur Andri Eyþórsson
  • fyrir Brot

Kvikmyndataka ársins

  • Árni Filippusson
  • fyrir Gullregn

Leikari ársins í aðalhlutverki

  • Ólafur Darri Ólafsson
  • fyrir Ráðherrann

Leikkona ársins í aðalhlutverki

  • Sigrún Edda Björnsdóttir
  • fyrir Gullregn

Leikkona ársins í aukahlutverki

  • Halldóra Geirharðsdóttir
  • fyrir Gullregn

Leikari ársins í aukahlutverki

  • Þorvaldur Davíð Kristjánsson
  • fyrir Ráðherrann

Leikmynd ársins

  • Heimir Sverrisson
  • fyrir Gullregn

Leikstjórn ársins

  • Ragnar Bragason
  • fyrir Gullregn

Sjónvarpsmaður ársins

  • Helgi Seljan

Tónlist ársins

  • Högni Egilsson
  • fyrir Þriðja pólinn

Upptöku- eða útsendingastjórn ársins

  • Ágúst Jakobsson
  • fyrir Ari Eldjárn - Pardon My Icelandic

Sjónvarpsefni ársins

  • Steinda Con
  • Stöð 2

Tengdar fréttir

Edduverðlaunahátíðinni aflýst

Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar hefur tilkynnt að Edduverðlaunahátíðin fari ekki fram með hefðbundnum hætt í ár líkt og stóð til.

Brot fær fimmtán tilnefningar til Eddunnar

Nú hafa allar tilnefningar til Eddunnar verið opinberar en Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999.

„Maður svaf ekki dúr það var svo mikið brölt á þeim“

„Mykines er svolítið erfið eyja eða hefur verið af því að það voru oft svo miklir straumar í kringum eyjuna. Ég held að hún hafi verið áttatíu og eitthvað daga einhvern tímann út af brimi í kringum eyjuna af því að það komst enginn að henni,“ segir Ragnar Axelsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×