Tónlist

Nina Kraviz með besta lag mánaðarins

Tinni Sveinsson skrifar
Nina Kraviz á sviði á tónlistarhátíðinni Coachella árið 2019.
Nina Kraviz á sviði á tónlistarhátíðinni Coachella árið 2019. Frazer Harrison/Getty Images

Tónlistarþátturinn PartyZone hefur sett saman lista yfir 30 bestu danstónlistarlög septembermánaðar. Á toppnum trónir hin rússneska Nina Kraviz.

Nina Kraviz er hlustendum PartyZone að góðu kunn en hún hefur verið með vinsælustu tónlistarmönnum danstónlistarsenunnar síðastliðinn áratug. Lagið sem trónir á toppi PartyZone listans þennan mánuðinn heitir Skyscrapers og er endurhljóðblöndun gerð af hinum þýska Solomun.

Nýr þáttur af PartyZone fer í loftið hér á Vísi á föstudögum og er hann síðan aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Mixcloud-rás þáttarins.

„PartyZone listinn fyrir september er mál málanna í þætti vikunnar. Sem fyrr grömsum við í plötukössunum hjá íslenskum plötusnúðum og skoðum allt það helsta sem er að koma út eða er að trylla á dansgólfunum þessa dagana,“ segir Helgi Már Bjarnason, einn umsjónarmanna þáttarins en hægt er að hlusta á hann hér fyrir neðan.

Klippa: Party Zone listinn fyrir september

Djúpt og lágskýjað stöff

„Listinn er troðfullur af funheitri tónlist úr öllum áttum. Það er komið haust í tónlistina, djúpt og lágskýjað stöff í bland við þétta og klúbbavæna tónlist. Þó má þarna finna einstaka lög fyrir sundlaugabakka. Gorgon City, Disclosure, Kraak & Smaak og Sofia Kourtesis hafa verið að gefa út flott efni á þessu ári. Gamlar hetjur eins og Áme, NY hetjurnar David Morales og og Louie Vega, DJ Spinna og Laurent Garnier koma síðan sterkar inn með lög eða endurhljóðblandanir. Í þriðja sæti listans er geggjað remix af gamla Rósenberg trans slagaranum Age of Love (1992). Þá má finna eitt íslenskt lag á listanum að þessu sinni en það er ný endurhljóðblöndun af gömlu teknólagi frá Exos frá 1999 sem heitir Áttfalt,“ segir Helgi ennfremur.

Hér má renna yfir listann í heild sinni.

Lag ársins 2001

Í þættinum er að finna dagskrárliðinn Múmía kvöldsins, sem er gömul klassík úr danstónlistinni. Að þessu sinni var PartyZone listinn fyrir nákvæmlega 20 árum skoðaður en þar sat á toppnum lag sem átti síðar eftir að vera topplagið á árslista þáttarins 2001.

Norsku kapparnir í Royksopp voru sjóðheitir á þessum tíma og er umrætt lag endurhljóðblöndun þeirra af laginu Please Stay með Mekon og 80s söngvaranum Marc Almond. Hægt er að hlusta á það hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Völdu Andrés plötusnúð mánaðarins

Dansþáttur þjóðarinnar, PartyZone, útnefnir plötusnúð mánaðarins í vetur og mun hann setja saman eitt eða fleiri "mixteip" með danstónlist. Hann hefur frjálsar hendur og setur saman sett með tónlist sem hann er með í spilun þá stundina og einkennir hann eða hana tónlistarlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×