Juventus enn í leit að fyrsta sigrinum eftir jafn­tefli gegn AC Milan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ante Rebić jafnaði metin fyrir AC Milan.
Ante Rebić jafnaði metin fyrir AC Milan. Pier Marco Tacca/Getty Images

Juventus og AC Milan gerðu 1-1 jafntefli í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Juventus hefur ekki enn unnið leik þegar fjórar umferðir eru búnar af deildinni.

Álvaro Morata kom Juventus yfir á 4. mínútu eftir að hafa fengið sendingu í gegnum vörn AC Milan frá Paulo Dybala. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik og staðan 1-0 Juventus í vil er flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Um miðbik síðari hálfleiks fengu gestirnir hornspyrnu. Sandro Tonali slengdi boltanum fyrir markið og Ante Rebić stangaði hann í netið. Staðan orðin 1-1 og viti menn, það reyndust lokatölur leiksins.

Þegar fjórar umferðir eru búnar eru Juventus með aðeins tvö stig á meðan AC Milan er jafnt nágrönnum sínum í Inter á toppi deildarinnar með 10 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira