Dramatísk þáttaröð um kvótakerfið á Íslandi vann virtustu verðlaunin Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2021 08:36 Björn Hlynur og Gísli Örn í hlutverkum sínum. Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Verbúð, sem frumsýnd verður síðar á árinu, var valin besta sjónvarpsþáttaröðin á evrópsku verðlaunahátíðinni Series Mania sem fram fór í Lille í Frakklandi í gærkvöldi.
Verbúð fjallar á dramatískan en um leið kómískan hátt um afleiðingar kvótakerfisins í sjávarútvegi fyrir lítið þorp á Vestfjörðum á árunum 1983 til 1991. Kristján Loðmfjörð, Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson og Nína Dögg Filippusdóttir á sviðinu í Lille í gærkvöldi.Aðsend Verbúðin er í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar, Björns Hlyns Haraldssonar og Maríu Reyndal. Handritið skrifuðu Gísli Örn, Björn Hlynur og Mikael Torfason. Series Mania-hátíðin þykir ein sú virtasta í álfunni þegar kemur að leiknu sjónvarpsefni. Nokkrir aðstandenda og leikara í þáttunum Verbúð í Lille.Aðsend Vesturport framleiddi þættina í samstarfi við RÚV, ARTE og Turbine Studios. Þættirnir, sem eru átta talsins, hafa fengið enska nafnið Blackport. Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Hlynur Haraldsson fara með aðalhlutverk í þáttunum en meðal annara leikara eru Gísli Örn Garðarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Anna Svava Knútsdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon, Hilmir Snær Guðnason, Sverrir Þór Sverrisson, Ingvar E. Sigurðsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Selma Björnsdóttir, Ingrid Jónsdóttir og Jógvan Hansen. Gísli Örn ásamt dóttur sinni Rakel Maríu sem heldur á verðlaunagripnum. Þættirnir verða frumsýndir um jólin. Björn Hlynur og Nína Dögg í hlutverkum sínum. Tökur á Verbúð hófust sumarið 2020 en síðustu tökum lauk nú í sumar þegar hluti hópsins hélt til Liverpool til að skjóta senur sem gerast utan landsteinanna. Stór hluti takanna fór fram á Suðureyri en sömuleiðis víða á höfuðborgarsvæðinu. COMPÉTITION INTERNATIONALE GRAND PRIX BLACKPORTCréée par Gísli Örn Garðarsson(Ragnarök), Björn Hlynur Haraldsson (The Witcher), et Nína Dögg FILIPPUSDÓTTIRCo-prod: @RUVfrettir, @ARTEfr, #Vesturport #TurbineStudiosDiffuseur Islande @RUVfrettir / Diffuseur France @ARTEfr pic.twitter.com/bzPANEitqe— SERIES MANIA (@FestSeriesMania) September 2, 2021 Að neðan má heyra viðtal Bítisins í morgun við Gísla Örn Garðarsson.
Íslendingar erlendis Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira