Ronaldo markahæsti landsliðsmaður sögunnar Valur Páll Eiríksson skrifar 1. september 2021 22:00 Ronaldo náði sögulegum árangri í kvöld. Pedro Fiúza/NurPhoto via Getty Images Cristiano Ronaldo varð í kvöld markahæsti landsliðsmaður karla í fótbolta í sögunni. Tvö mörk hans fyrir Portúgal í 2-1 sigri á Írlandi komu honum efst á þann lista.
Íranska markavélin Ali Daei hefur átt metið yfir markahæsta landsliðskarl sögunnar frá árinu 2006 en hann skoraði 109 landsliðsmörk í 148 landsleikjum fyrir Íran frá 1993 til 2006. Ronaldo hefur sótt fast að metinu með því að raða inn mörkum fyrir Portúgal síðustu misseri og jafnaði það á EM karla í sumar. Hann var því með 109 mörk fyrir leik kvöldsins við Írland. Hann fékk tækifæri til að taka metið er Portúgal fékk vítaspyrnu snemma leiks en brást þar bogalistin. Portúgal lenti 1-0 undir og var það þar til á 89. mínútu þegar Ronaldo jafnaði leikinn og sló þar með metið. Hann bætti þá öðru marki við er hann tryggði Portúgal sigur á 96. mínútu leiksins. Ronaldo er því alls kominn með 111 landsliðsmörk á ferlinum og er markahæsti landsliðsmaður sögunnar. Hann og Daei eru í sérklassa en þriðji á listanum er Mokhtar Dahari frá Malasíu með 89 mörk. Útilokað er þó að hann nái meti kvenna sem hin kanadíska Christine Sinclair á. Hún hefur skorað 187 landsliðsmörk á sínum ferli, þremur meira en hin bandaríska Abby Wambach en þær eru langmarkahæstu konur sögunnar, á undan Birgit Prinz frá Þýskalandi sem skoraði 128 mörk.
FIFA Portúgal HM 2022 í Katar Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Bein útsending: Púlsinn tekinn í KR-heimilinu City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Sjá meira