Erlent

Mánuði eftir morðið ræður óvissan ríkjum

Samúel Karl Ólason skrifar
Átján málaliðar frá Kólumbíu voru handteknir skömmu eftir morðið á Moise. Alls hafa 44 verið handteknir en enginn hefur verið færður fyrir dómara enn.
Átján málaliðar frá Kólumbíu voru handteknir skömmu eftir morðið á Moise. Alls hafa 44 verið handteknir en enginn hefur verið færður fyrir dómara enn. AP/Joseph Odelyn

Mánuði eftir að Jovenel Moise, forseti Haítí, var myrtur á heimili sínu hefur enginn af þeim sem handteknir hafa verið vegna árásarinnar verið færður fyrir dómara. Dómarar og aðrir sem komið hafa að rannsókninni segjast hafa orðið fyrir þrýstingi um að breyta skýrslum og eru í felum vegna morðhótana.

Íbúar Haíti standa nú margir hverjir í þeirri trú að yfirvöld landsins séu að nota rannsókn á morðinu til að herja á pólitíska andstæðinga ríkisstjórnarinnar og tryggja völd hennar í sessi, samkvæmt frétt Washington Post.

Þar er bent á að á undanförnu hafi yfirsaksóknari Port-au-Prince gefið út handtökuskipanir gegn þessum pólitísku andstæðingum, áhrifamiklum presti, fyrrverandi dómsmálaráðherra og gagnrýnendum Moise.

Allir segjast ekkert hafa með morðið að gera.

Segja rannsókninni beitt í pólitískum tilgangi

Fyrrverandi öldungadeildarþingmaður og forsetaframbjóðandi segir í samtali við Washington Post að starfandi ríkisstjórn landsins hafi beitt handtökuskipunum gegn öllum sem geti staðið í vegi hennar. Aðrir viðmælendur miðilsins slógu á svipaða strengi.

Alls hafa 44 verið handteknir í tengslum við rannsóknina á morði Moise. Þar á meðal eru átján fyrrverandi hermenn frá Kólumbíu, sem vitað er að réðust á heimili forsetans nóttina sem hann var myrtur, og nokkrir úr varðsveit forsetans.

Ráðamenn í Haítí og Kólumbíu hafa sagt hermennina hafa verið ráðna sem málaliða af öryggisfyrirtæki í Flórída. Einhverjir þeirra eru sagðir hafa verið ráðnir í þeirri trú að þeir yrðu lífverðir og öryggisverðir.

Spjótin hafa einnig beinst að lækni af haítískum uppruna. Sá heitir Christian Emmanuel Sanon og hefur búið í Flórída í Bandaríkjunum. Hann er nú í haldi lögreglunnar í Haítí.

Lögmenn Antonio Intragio, eiganda CTU Security sem er áðurnefnt öryggisfyrirtæki frá Flórída, segja hann hafa verið sannfærðan um að málaliðarnir ættu að veita öryggisgæslu í tengslum við mannúðarverkefni í Haítí. Það verkefni væri á vegum yfirvalda í Haítí en yrði stýrt af Sanon.

Í yfirlýsingu lögmanna Intragio segir að skömmu fyrir morð Moise hafi málaliðarnir verði beðnir um að fylgja dómara og saksóknara til að fylgja eftir handtökuskipun gegn Moise. Þeir hafi átt að verja embættismenn á meðan lögregluþjónar handtóku forsetann.

„Við stöndum í þeirri trú að lífverðir forsetans hafi svikið hann,“ segir í yfirlýsingunni.

Sjá einnig: Segjast hafa ætlað að handtaka forsetann

Samkvæmt Washington Post fylgdi þessari yfirlýsingu bréf þar sem farið var fram á aðstoð fyrirtækis Intriago við að handtaka Moise. Bréfið ber undirskriftir Windelle Coq Thélot, dómara, og Gérald Norgaisse, saksóknara. Báðir neita því að hafa skrifað undir bréf sem þetta.

Norgaisse sagðist aldrei hafa séð bréfið áður og staðhæfði að undirskriftin væri fölsuð.

Lögmaður Coq Thélot sagði sömuleiðis að hún hefði ekki skrifað undir bréfið. Hún er fyrrverandi hæstaréttardómari sem Moise vék úr embætti í febrúar og sakaði um tilraun til valdaráns. Búið er að gefa út handtökuskipun gegn henni.

Óvinsæll forseti

Mosie var einkar óvinsæll forseti og var sakaður um einræðistilburði. Degi áður en hann dó skipaði hann sinn sjöunda forsætisráðherra á kjörtímabili sínu. Þar áður hafði Claude Joshep, utanríkisráðherra verið starfandi forstætisráðherra. Moise skipaði svo Ariel Henry sem forsætisráðherra áður en hann dó.

Eftir morðið hélt Joseph áfram að stjórna landinu en nú deila hann og Henry völdum.

Samkvæmt stjórnarskrá Haítí hefði forseti Hæstaréttar landsins átt að taka við embætti forseta en sá dó nýverið vegna Covid-19. Moise hafði þar að euki rekið flesta þingmenn landsins úr embættum sínum en einunigs tíu aff þrjátíu öldungadeildarþingmönnum landsins voru í embætti þegar hann var myrtur.


Tengdar fréttir

Vill blása til kosninga í Haítí sem fyrst

Forsætisráðherra Haítí segist ætla að blása til kosninga eins fljótt og auðið er eftir að Jovenel Moise, forseti landsins, var myrtur fyrr í þessum mánuði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×