Bíó og sjónvarp

Big Bang-stjarna vill til Íslands í nýju þáttunum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kaley Cuoco leikur aðalhlutverkið í þáttunum Flight Attendant. Hún gæti verið á leið til Íslands.
Kaley Cuoco leikur aðalhlutverkið í þáttunum Flight Attendant. Hún gæti verið á leið til Íslands. Mynd/WarnerMedia

Kaley Cuoco, ein af stjörnum gamanþáttana ofurvinsælu Big Bang Theory, segist gjarnan vilja taka upp einn þátt í annarri þáttaröð Flight Attendand, nýjum þáttum hennar, hér á landi.

Þetta kemur fram í viðtali Deadline við Cuoco sem árum saman lék Penny í Big Bang Theory. Hún leikur aðalhlutverkið í þáttunum Flight Attendant auk þess sem að hún framleiðir þættina. Fyrsta þáttaröðin hefur fengið góðar viðtökur.

Þættirnir voru nýlega tilnefndir til Emmy-verðlauna sem bestu gamanþættirnir, auk þess sem að Cuoco fékk tilnefningu sem besta leikkona í gamanþáttum fyrir leik hennar í þáttunum. Alls fékk fyrsta þáttaröðin níu tilnefningar til Emmy-verðlauna.

Í þáttunum leikur Cuoco flugfreyju sem glímir við áfengisvandamál. Tökur á þáttaröð tvö hefjast í september og greinir Deadline frá því að Cuoco vilji gjarnan koma til Íslands til þess að taka upp þátt í annarri þáttaröðinni, það sé þó háð því að kórónuveirufaraldurinn setji ekki strik í reikninginn.


Tengdar fréttir

Krúnan og Manda­l­orian sópa að sér Emmy til­nefningum

Tilnefningar til Emmy verðlaunanna hafa verið tilkynntar og eru þar þáttaraðirnar The Crown og The Mandalorian tilnefningaflestar. Hvor þáttanna er tilnefndur til 24 verðlauna en á eftir fylgja WandaVision, Ted Lasso og Handmaid‘s Tale hvað tilnefningafjölda varðar.

Mank og The Crown fá sex tilnefningar til Golden Globe

Í dag voru tilnefningar til virtu verðlaunanna Golden Globe kynntar. Kvikmyndin Mank fær sex tilnefningar og þættirnir The Crown sem fjalla um lífshlaup Elísabetar Bretlandsdrottningar fengu einnig sex tilnefningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×