Fótbolti

Fordæma kynþáttaníð í garð enskra leikmanna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jadon Sancho og Marcus Rashford komu inn af varamannabekk Englands undir lok framlengingar til þess eins að taka vítaspyrnur. Þeir klúðruðu báðir.
Jadon Sancho og Marcus Rashford komu inn af varamannabekk Englands undir lok framlengingar til þess eins að taka vítaspyrnur. Þeir klúðruðu báðir. Simon Stacpoole/Getty Images

England tapaði gegn Ítalíu í vítaspyrnukeppni í gærkvöld er liðin mættust í úrslitum Evrópumótsins í fótbolta. Þeir leikmenn enska liðsins sem brenndu af vítaspyrnum sínum fengu holskeflu af kynþáttaníði á samfélagsmiðlum í kjölfarið.

Alls brenndu þrír leikmenn af vítaspyrnum hjá Englandi í gær. Um er að ræð þá Marcus Rashford (Manchester United), Bukayo Saka (Arsenal) og Jadon Sancho (Borussia Dortmund). 

Enska knattspyrnusambandið, félög leikmannanna, blaðamenn og fleiri hafa fordæmt ummælin sem fá því miður enn að viðgangast þó árið sé 2021.Einn þingmaður er þó ekki alveg sama sinnis og telur að Rashford hefði átt að vera duglegri að æfa vítaspyrnur frekar en að skipta sér af pólitískum málefnum.

Í frétt breska ríkisútvarpsins um málið segir að lögreglan sé nú þegar að rannsaka málið og hegðun sem þessi verði ekki liðin. 

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur tekið í sama streng. Gary Neville, fyrrum leikmaður Englands og sparkspekingur Sky Sports, hefur hins vegar látið Johnson heyra það fyrir tvískinnung.

„Forsætisráðherrann sagði að það væri allt í lagi fyrir fólkið í landinu að baula á leikmenn sem væru að reyna ýta undir jafnrétti og sýna samstöðu gegn kynþáttaníði,“ sagði Neville í beinni lýsingu á Sky eftir leik. 

Þá virðist sem ekki allir meðlimir þingsins séu tilbúnir að styðja ensku leikmennina en Natalie Elphicke, þingmaður Íhaldsflokksins, skaut fast á Rashford og sagði að hann hefði ef til vill átt að einbeita sér meira að því að æfa vítaspyrnur heldur en blanda sér í pólitísk málefni. 

Er hún þar að vitna í herferð leikmannsins til að hjálpa börnum sem minna mega sín í Bretlandi.

Enska knattspyrnusambandið hefur tekið skýrt fram að fólk sem beitir leikmenn liðsins kynþáttaníði sé ekki velkomið að styðja liðið né fylgja því.

„Við munum gera allt sem við getum til að styðja við bakið á leikmönnum á meðan við hvetjum til harðra refsinga gegn þeim sem bera ábyrgð á ummælum sem þessum,“ segir í yfirlýsingu frá sambandinu.

Þá sendir enska sambandið væna pillu á eigendur samfélagsmiðla og þá sem stjórna þeim en þar getur fólk látið gamminn geysa nafnlaust og dælt út hatri án þess að takast á við afleiðingarnar.

Enska knattspyrnusambandið sem og félög landsins hafa áður bent á að það þarf harðari reglur  á samfélagsmiðlum á borð við Facebook, Twitter og Instagram svo fólk geti ekki látið slíkt hatur flakka nafnlaust og án afleiðinga.

Bæði Manchester United og Arsenal hafa gefið út yfirlýsingar vegna kynþáttaníðsins en Marcus Rashford og Bukayo Saka brenndu af sínum spyrnum í gærkvöldi.


Tengdar fréttir

Dýrkeyptar skiptingar Southgate

Gareth Southgate, þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta, gerði tvær dýrkeyptar skiptingar undir lok framlengingar í úrslitaleik Evrópumótsins gegn Ítölum í kvöld. Ítalir unnu 3-2 eftir vítaspyrnukeppni þar sem varamenn Southgate klikkuðu.

Sjáðu mörkin, vítakeppnina og bikarinn á loft

Ítalía varð í kvöld Evrópumeistari karla í fótbolta í annað sinn eftir 3-2 sigur á Englandi í vítaspyrnukeppni eftir 1-1 jafntefli liðanna á Wembley í Lundúnum. Mikil dramatík var í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×