Fótbolti

Phil Foden æfði ekki með enska liðinu í morgun

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Phil Foden æfði ekki með enska liðinu í dag.
Phil Foden æfði ekki með enska liðinu í dag. Visionhaus/Getty Images

Phil Foden var hvergi sjáanlegur á æfingu enska landsliðsins í morgun. Samkvæmt heimildum Sky Sports eru það varúðarráðstafanir vegna smávægilegra meiðsla.

Hinir 25 leikmenn enska liðsins æfðu venju ssmkvæmt á St. Georges Park í morgun fyrir úrslitaleik EM sem fram fer á morgun þar sem Ítalir bíða þeirra.

Foden hefur komið við sögu í þremur af sex leikjum Englands á mótinu, nú seinast þegar hann kom inn á sem varamaður gegn Danmörku í undanúrslitum.

Foden hefur spilað með yngri landsliðum Englands, en fyrsti leikur hans fyrir A-landsliðið var gegn Íslendingum síðastliðinn september, þar sem Foden kom sér í fréttirnar af öðrum ástæðum.

Ellir leikmenn enska liðsins, sem og ítalska liðsins, hafa nú gegnigst undir kórónaveirupróf fyrir úrslitaleikinn. Allir ættu þeir að vera klárir fyrir leikinn á morgun, nema Leonaro Spinazzola sem sleit hásin í átta liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×