Fótbolti

Eyðileggur sjóðheitur Cristiano Ronaldo síðasta séns belgísku gullkynslóðarinnar?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo fagnar einu af fimm mörkum sínum á Evrópumótinu.
Cristiano Ronaldo fagnar einu af fimm mörkum sínum á Evrópumótinu. AP/Darko Bandic

Evrópumeistarar Portúgals lifðu af Dauðariðilinn þökk sé því að Cristiano Ronaldo var í miklum markaham. Nú er komið að uppgjöri á móti einu af sigurstranglegasta liði keppninnar.

Tvö af þeim þremur liðum sem voru með fullt hús í riðlakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu mæta til leiks í útsláttarkeppninni í dag. Það er líka von á mörkum í dag því þrjú markahæstu liðin í mótinu verða þá í eldlínunni.

Nágrannarnir Holland og Belgía unnu bæði alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni og þau spila bæði í sextán liða úrslitunum í dag. Hollendingar mæta Tékkum, sem urðu í þriðja sæti í D-riðli en Belgar mæta Evrópumeisturum Portúgals sem náðu bara þriðja sætinu í F-riðlinum.

Á sama tíma og Hollendingar og Belgar hafa unnið þrjá leiki í röð þá unnu lið Tékka og Portúgals góða sigra í fyrsta leik sínum á mótinu en hafa síðan ekki náð að fagna sigri í tveimur leikjum.

Leikur Hollands og Tékklands hefst klukkan 16.00 en leikur Belgíu og Portúgals klukkan 19.00.

Það var búist við miklu af Belgum á þessu móti þar sem Gullkynslóðin fær ekki mörg tækifæri í viðbót til að vinna stórmót og landslið þeirra er vissulega í efsta sæti á heimslista FIFA. Belgar afgreiddu sinn riðil líka frekar sannfærandi og enduðu með sex stiga forskot á næsta lið og markatöluna 7-1.

Hollendingar voru meira spurningarmerki fyrir mótið en þeir hafa unnið þrjá góða sigra. Þeir hleyptu reyndar Úkraínumönnum inn í fyrsta leikinn sinn sem Hollendingar unnu á endanum 3-2 en síðustu tveir leikir hafa unnist sannfærandi, 2-0 og 3-0.

Augun verða á Portúgalanum Cristiano Ronaldo sem fyrr en hann hefur verið sjóðheitur á mótinu og er markahæsti leikmaður keppninnar með fimm mörk í fyrstu þremur leikjunum.

Portúgalar ættu líka að vera farnir að þekkja það vel að mæta öflugum liðum því tveir síðustu mótherjar hafa verið Þýskaland og heimsmeistarar Frakka. Belgíska liðið fékk mun minni mótspyrnu í sínum riðli og þetta voru frekar létt dagsverk fyrir utan leikinn á móti Dönum þar sem þeir komu til baka eftir að hafa lent undir snemma leiks.

Hollendingar hafa sloppið við stórlið í byrjun móts þökk sé frekar þægilegum riðli og Tékkar eru ekki lið sem ætti að stoppa hollenska liðið.

Tékkinn Patrik Schick skoraði þrisvar í fyrstu þremur hálfleikjum mótsins þar á meðal ógleymanlegt mark frá miðju á móti Skotum. Hvorki Patrik Schick né liðsfélagar hans hafi fundið marknetið á síðustu 143 mínútum mótsins.

Það búast því flestir við sigri Hollendinga á móti Tékkum í dag. Georginio Wijnaldum og Memphis Depay hafa verið í miklum ham og áhyggjur hollenska knattspyrnusérfræðinga af þjálfaranum Frank de Boer hafa verið ástæðulausar hingað til.

Hollenska liðið er að keppa á sínu fyrsta stórmóti síðan á HM 2014 en þá fóru Hollendingar alla leið í undanúrslitin. Þeir eru aftur á móti í fyrsta sinn í útsláttarkeppni Evrópumótsins síðan 2008 og hafa ekki unnið leik í útsláttarkeppni EM síðan 25. júní 2004.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×